Graves-sjúkdómur í börnum og unglingum á Íslandi á árunum 2001-2021

Publisher Copyright: © 2022 Laeknafelag Islands. All rights reserved. INNGANGUR Graves-sjúkdómur er sjálfsónæmissjúkdómur þar sem sjálfsmótefni gegn viðtaka stýrihormóns skjaldkirtils (Thyroid-stimulating hormone, TSH) valda ofseytingu skjaldkirtilshormóna, og er hann algengasta orsök skjaldvakaofse...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Thorsson, Thorbergur Atli, Bjarnason, Ragnar, Jonasdottir, Soffia Gudrun, Jonsdottir, Berglind
Other Authors: Læknadeild, Kvenna- og barnaþjónusta, Landspítali
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3633
https://doi.org/10.17992/lbl.2022.03.680
Description
Summary:Publisher Copyright: © 2022 Laeknafelag Islands. All rights reserved. INNGANGUR Graves-sjúkdómur er sjálfsónæmissjúkdómur þar sem sjálfsmótefni gegn viðtaka stýrihormóns skjaldkirtils (Thyroid-stimulating hormone, TSH) valda ofseytingu skjaldkirtilshormóna, og er hann algengasta orsök skjaldvakaofseytingar (Thyrotoxicosis) í börnum. Einkenni barna eru fjölbreytt og óljósari en hjá fullorðnum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna nýgengi Graves í börnum og unglingum á Íslandi síðastliðin 20 ár og gera grein fyrir meðferðarúrræðum og tíðni endurkomu sjúkdómsins. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Framkvæmd var afturskyggn lýsandi rannsókn. Rannsóknin náði til allra barna og unglinga sem greindust með Graves á árunum 2001-2021. Upplýsingar fengust úr lyfjagagnagrunni Embættis landlæknis og lista ICD10 greininga á Landspítala. NIÐURSTÖÐUR 57 börn og ungmenni greindust með Graves, 3,5 á hverja 100,000 íbúa yngri en 18 ára. Nýgengi jókst ekki á tímabilinu. Kynjahlutfall var 1:2,6 (strákar:stelpur) og meðalaldur við greiningu var 13,6 ár hjá strákum en 13,9 hjá stelpum. Lyfjameðferð er í gangi hjá 8 einstaklingum (14,5%), hjá 13 náðist að koma á eðlilegri starfsemi með lyfjum (23,7%), fjórir fengu sjúkdómsendurkomu og eru á lyfjameðferð (7,3%), 25 fengu meðferð með geislavirku joði (45,5%) og 5 skurðaðgerð (9,1%). Strákar fengu frekar sjúkdómsendurkomu en stúlkur, heildar sjúkdómsendurkoma á tímabilinu var 31,8%. UMRÆÐA Sjúkdómurinn var algengari í stelpum en þó var kynjahlutfall lægra en búist var við. Skjaldkirtilsbælandi lyf var fyrsta val í meðferð. Sjúkdómsendurkoma var algeng og meðferð með geislavirku joði var algengasta varanlega meðferðarúrræðið. Í framhaldi rannsóknarinnar mætti kanna mögulegt samband tímalengdar lyfjameðferðar og sjúkdómsendurkomu hjá bæði börnum og fullorðnum. INTRODUCTION: Graves' disease is an autoimmune disease in which autoantibodies cause an increase in the production of thyroid hormones, and is the most common cause of thyrotoxicosis in children. Symptoms in children are often more obscure than ...