„Þetta er ekkert flókið“ Smokkanotkun ungra karlmanna

Tilgangur: Klamydía er algengur kynsjúkdómur meðal ungs fólks. Helsta forvörnin felst í smokkanotkun en lítið er vitað um hana meðal ungra karlmanna hérlendis. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða hvaða þættir skipta máli við smokkanotkun ungra karlmanna, bæði hvetjandi og letjandi þættir. Aðferð:...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Bender, Sóley Sesselja, Jóhannesdóttir, Snæfríður, Ellertsdóttir, Sigurbjörg Lind
Other Authors: Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild, Kvenna- og barnaþjónusta, Landspítali
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3528
Description
Summary:Tilgangur: Klamydía er algengur kynsjúkdómur meðal ungs fólks. Helsta forvörnin felst í smokkanotkun en lítið er vitað um hana meðal ungra karlmanna hérlendis. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða hvaða þættir skipta máli við smokkanotkun ungra karlmanna, bæði hvetjandi og letjandi þættir. Aðferð: Rannsóknin grundvallast á eigindlegri aðferð, rýnihóparannsókn. Þátttakendur voru valdir í rannsóknina með tilgangs- og snjóboltaúrtaksaðferð. Þeir voru nemendur í tveimur framhaldsskólum, annar í Reykjavík og hinn á Akureyri. Tekin voru viðtöl við sex rýnihópa. Viðtölin voru skráð frá orði til orðs og greind í þemu með rammaaðferð. Niðurstöður: Alls tóku 36 ungir karlmenn, á aldrinum 18-23 ára, þátt í rannsókninni. Niðurstöður leiddu í ljós fjögur þemu, sem voru grín og sprell, þægilegra án smokks, skrítið augnaráð og eyðileggur „momentið“. Í gegnum þemun eru lýsingar á letjandi og hvetjandi þáttum. Fram kom að það helsta sem hindraði notkun smokka var takmörkuð fræðsla, neikvæð viðhorf, erfiðleikar við að kaupa smokka og notkun þeirra. Það sem einkum hvatti til smokkanotkunar voru mögulegar neikvæðar afleiðingar áhættuhegðunar, jákvæð viðhorf til smokka og notkunar þeirra sem gaf til kynna sjálfsöryggi þátttakenda. Ályktun: Ungum karlmönnum finnst lítið vera rætt við þá um smokkanotkun, þá skortir fræðslu um smokka og fyrirmyndir um notkunina. Kennarar og skólahjúkrunarfræðingar í grunn- og framhaldsskólum landsins þurfa að fá menntun og þjálfun til að koma kynfræðsluefni um smokka betur áleiðis til ungra karlmanna. Jafnframt þarf að styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu varðandi kynheilbrigðismál. Bæta þarf sýnileika og aðgengi að smokkum. ENGLISH SUMMARY Aim: Chlamydia is prevalent among young people in Iceland. The main prevention is condom use but limited knowledge is available about this use among Icelandic young men. The purpose of this study is to explore important factors regarding condom use, both facilitators and barriers. Method: The study is qualitative and is based on focus groups. Purposeful and ...