Nýliðun leikskólakennara, fjöldi brautskráðra og bakgrunnur leikskólakennaranema

Skortur á leikskólakennurum hefur verið viðvarandi á Íslandi en samkvæmt lögum eiga tveir þriðju hlutar starfsmanna leikskóla að vera leikskólakennarar. Tilgangur þessarar rannsóknar er í fyrsta lagi að meta þörf fyrir nýliðun í stétt leikskólakennara miðað við stöðu og þróun undanfarna áratugi. Í ö...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Netla
Main Authors: Björnsdóttir, Amalía, Jóhannsdóttir, Þuríður Jóna
Other Authors: Deild kennslu- og menntunarfræði, Deild faggreinakennslu
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3316
https://doi.org/10.24270/netla.2020.12
Description
Summary:Skortur á leikskólakennurum hefur verið viðvarandi á Íslandi en samkvæmt lögum eiga tveir þriðju hlutar starfsmanna leikskóla að vera leikskólakennarar. Tilgangur þessarar rannsóknar er í fyrsta lagi að meta þörf fyrir nýliðun í stétt leikskólakennara miðað við stöðu og þróun undanfarna áratugi. Í öðru lagi að skoða framvindu stúdenta í leikskólakennaranámi við Háskóla Íslands og draga upp mynd af bakgrunni þeirra og aðstæðum. Frá 1998 til 2013 fjölgaði leikskólakennurum en eftir það hefur þeim fækkað og hlutfall eldri leikskólakennara í stéttinni er að aukast. Nýliðun hefur verið lítil þar sem brautskráningum úr leikskólakennaranámi fækkaði eftir að krafist var fimm ára meistaranáms til starfsréttinda. Á sama tíma hefur leikskólabörnum fjölgað og viðverutími lengst. Af tölum um fjölda innritaðra og brautskráðra í leikskólakennaranámi við Háskóla Íslands á árunum 2015–2019 sést að innan við helmingur lýkur námi innan hefðbundinna tímamarka. Þetta bendir til þess að um mikið brottfall geti verið að ræða og/eða að framvinda stúdenta í náminu sé hæg. Í niðurstöðum spurningakönnunar, sem lögð var fyrir leikskólakennaranema á fyrsta og öðru námsári, kemur fram að óhefðbundnir stúdentar eru í meirihluta, þ.e. þeir eru yfir 25 ára aldri þegar þeir hefja nám, eru í sambúð og með börn á framfæri. Langflestir stunduðu námið í fjarnámi og unnu í leikskóla með námi og um helmingur í fullu starfi eða því sem næst. Um tveir þriðju hlutar leikskólakennaranemanna notuðu 20 klst. eða minna á viku í námið og þegar komið var á annað námsár höfðu 40% þátttakenda lokið sem samsvarar fullu námi á fyrsta námsári, sem bendir til að námstími til að ljúka fimm ára háskólanámi verði langur. Niðurstöðurnar benda til að vandinn skýrist af aðstæðum stúdenta sem gera það að verkum að þeir hafa ekki nægan tíma til að sinna náminu. Knýjandi er að finna leiðir til gera fleirum kleift að ljúka leikskólakennaranámi. During the past two decades, the demographics of preschool children in Iceland have changed, and their school days have lengthened. ...