Fæðuval ungra Íslendinga með geðrofssjúkdóma og þróun líkamsþyngdar þeirra á 8 til 12 mánaða tímabili

Tilgangur: Tíðni lífsstílssjúkdóma er hærri meðal einstaklinga með geð- rofssjúkdóma en almennings. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna fæðuval ungs fólks með geðrofssjúkdóma, en fæðuval þessa hóps hefur aldrei verið kannað hérlendis áður. Efniviður og aðferðir: Þátttakendur voru þjónustuþegar La...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Friðþjófsdóttir, Helga Guðrún, Geirsdottir, Olof, Jónsdóttir, Halldóra, Steingrimsdottir, Laufey, Thorsdottir , Inga, Þorgeirsdóttir, Hólmfríður, Briem, Nanna, Gunnarsdottir, Ingibjorg
Other Authors: Rannsóknastofa í næringarfræði (HÍ), Unit for Nutrition Research (UI), Heilbrigðisvísindasvið (HÍ), School of Health Sciences (UI), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands / Icelandic Medical Association 2017
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/331
https://doi.org/10.17992/lbl.2017.06.141
Description
Summary:Tilgangur: Tíðni lífsstílssjúkdóma er hærri meðal einstaklinga með geð- rofssjúkdóma en almennings. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna fæðuval ungs fólks með geðrofssjúkdóma, en fæðuval þessa hóps hefur aldrei verið kannað hérlendis áður. Efniviður og aðferðir: Þátttakendur voru þjónustuþegar Laugarássins (n=48, 18-30 ára), sem sóttu þjónustu á því tímabili sem gagnaöflun fór fram (júlí- ágúst 2016). Fæðuval og næringargildi fæðu var metið með sólarhringsupprifjun á mataræði. Niðurstöður voru bornar saman við ráð- leggingar Embættis landlæknis og niðurstöður landskönnunar á mataræði 2010-2011 fyrir sama aldurshóp (n=250). Þróun líkamsþyngdar síðastliðna 8-12 mánuði var metin út frá skráðum upplýsingum í sjúkraskrá (Sögu). Niðurstöður: Neysla á ávöxtum, fiski, mjólkurvörum, jurtaolíum og lýsi var marktækt lægri meðal þjónustuþega en hjá þátttakendum í landskönnun 2010-2011, en neysla á sælgæti og gosdrykkjum hærri (p<0,001). Hlutfall viðbætts sykurs af heildarorku var hærra í fæði þjónustuþega (15% á móti 12%) og hlutfall próteina lægra (16% á móti 18%) heldur en í viðmiðunarhópnum. Hlutfall ómega-3 fitusýra í fæði og neysla D-vítamíns var lægri á meðal þjónustuþega en meðal þátttakenda í landskönnun og töluvert undir ráðleggingum (0,04 ± 0,3% ómega-3 af heildarorku á móti 1,2 ± 0,6%, p<0,001 og 3,1 ± 4,2 µg D-vítamín/dag á móti 5,6 ± 6,5 µg/dag, p<0,001). Tæplega 40% þjónustuþega hafði þyngst um >5% af upphafs- þyngd sinni á 8-12 mánaða tímabili. Ályktanir: Fæðuval ungs fólks með geðrofssjúkdóma samræmist ekki opinberum ráðleggingum um fæðuval og er lakara en fæðuval viðmiðunarhópsins. Mikilvægt er að þróa leiðir til að bæta fæðuval og þar með næringargildi fæðu hópsins. Introduction: The prevalence of lifestyle related diseases is higher among people with psychotic disorders than the general population. The aim was to assess dietary intake of young people with psychotic disorders for the first time in Iceland. Material and methods: Subjects were young people (n=48, age 18-30y) with psychotic ...