Rafskútuslys á höfuðborgarsvæðinu sumarið 2020

Publisher Copyright: © 2021 Laeknafelag Islands. All rights reserved. INNGANGUR Rafskútur eru orðnar vinsæll samgöngumáti á höfuðborgarsvæðinu. Erlendis hefur notkun þeirra fylgt nokkur slysatíðni en ekki er vitað um tíðni slíkra slysa á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að meta orsakir, eðli og...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Pétursdóttir, Sigrún Guðný, Kristjánsson, Jón Magnús, Björnsson, Hjalti Már
Other Authors: Læknadeild, Landspítali
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3226
https://doi.org/10.17992/LBL.2021.05.635
Description
Summary:Publisher Copyright: © 2021 Laeknafelag Islands. All rights reserved. INNGANGUR Rafskútur eru orðnar vinsæll samgöngumáti á höfuðborgarsvæðinu. Erlendis hefur notkun þeirra fylgt nokkur slysatíðni en ekki er vitað um tíðni slíkra slysa á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að meta orsakir, eðli og afleiðingar rafskútuslysa á höfuðborgarsvæðinu sumarið 2020. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Einstaklingar sem leituðu til bráðamóttöku Landspítala vegna rafskútu­slysa á tímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst 2020 voru beðnir um að skrá hvar slysið átti sér stað, ástæður slyss og notkun á hlífum og áfengi. Upplýsingum um áverka og afdrif var safnað úr sjúkraskrám Landspítala. NIÐURSTÖÐUR Á rannsóknartímabilinu leituðu 149 einstaklingar aðstoðar vegna rafskútuslysa, að meðaltali 1,6 á dag. Aldursbilið var frá 8 árum upp í 77 ár; 45% voru yngri en 18 ára og 58% voru karlkyns. Í 60% tilvika reyndist orsök slyss vera að farið hafi verið of hratt, viðkomandi misst jafnvægi eða ójafna í götu. Reyndust 79% barna hafa notað hjálm en einungis 17% fullorðinna. Engin börn voru undir áhrifum áfengis eða vímuefna en meðal 18 ára og eldri sögðust 40% hafa verið undir áhrifum þegar slysið átti sér stað. Voru 38% með beinbrot og 6% þurftu innlögn á sjúkrahúsið til eftirlits eða meðferðar en enginn flokkaðist sem alvarlega slasaður samkvæmt AIS-flokkun. ÁLYKTUN Sumarið 2020 slösuðust einn til tveir einstaklingar á dag á höfuðborgarsvæðinu vegna rafskúta en enginn hlaut alvarlega áverka. Reyna þarf að draga úr slysatíðni vegna rafskúta með því að bæta hjólastíga, hvetja til hjálmanotkunar og auka fræðslu um hættu af notkun rafskúta undir áhrifum áfengis og vímuefna. INTRODUCTION: Electric scooters have become popular in Iceland. The aim of the current study was to gather data on the incidence, causes, and severity of injuries due to the use of electric scooters in the Reykjavik area during the summer of 2020. MATERIAL AND METHODS: Individuals presenting to the Emergency Department (ED) at Landspitali between June 1 and August 31 were asked ...