Pots, Pipes and Plates : An Archaeology of Consumption in 17th and 18th Century Iceland

Í Evrópu og Norður-Ameríku er árnýöld, og sérstaklega 17. og 18. öld, séð sem upphaf neyslubyltingarinnar (e. the consumer revolution), neytendasamfélags (e. consumer society) og umskipta frá varning úr sjálfsþurftarbúskap til neysluvarnings frá verslun. Á Íslandi er þetta tímabil hins vegar oft séð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jónsson, Jakob Orri
Other Authors: Gavin Lucas, Sagnfræði- og heimspekideild (HÍ), Faculty of History and Philosophy (UI), Hugvísindasvið (HÍ), School of Humanities (UI), Háskóli íslands, University of Iceland
Format: Doctoral or Postdoctoral Thesis
Language:English
Published: University of Iceland, School of Humanities, Faculty of History and Philosophy 2022
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/2847
Description
Summary:Í Evrópu og Norður-Ameríku er árnýöld, og sérstaklega 17. og 18. öld, séð sem upphaf neyslubyltingarinnar (e. the consumer revolution), neytendasamfélags (e. consumer society) og umskipta frá varning úr sjálfsþurftarbúskap til neysluvarnings frá verslun. Á Íslandi er þetta tímabil hins vegar oft séð sem tími efnhagslegrar stöðnunar og almennrar fátæktar, hluti „niðurlægingartímabils“ milli dýrðar landnáms- og þjóðveldisalda og ríkidæmis hins sjálfstæða Íslands eftir lok seinni heimstyrjaldar. Þessi sýn er á skjön við algenga evrópska sýn á þetta tímabil og þessi ritgerð mun kanna togstreituna milli hinnar íslensku hugmyndar um „niðurlægingartímabilið“ og hinnar hnattrænu hugmyndar um efnahagslegan vöxt og neyslubyltingu, og hvor sýn nær betur utan um aðstæður á Íslandi á árnýöld. Þetta mun vera gert með fornleifafræðilegum rannsóknum, sem kanna hvort 17. og 18. aldar Ísland getur talist neyslusamfélag eða á leið að verða slíkt samfélag. Markmiðið er að einblína á tvo flokka efnismenningar sem höfðu tengsl við neysluvarning; þ.e. tóbakspípur úr leir og leirker. Hingað til hafa aðeins örfáar rannsóknir á krítarpípum og leirkerjum farið fram á Íslandi og þær rannsóknir sem hafa verið gerðar hafa einbeitt sér að verslunar tengslum með rannsóknum á uppruna þessara gripa og nýtingu þeirra til tímasetninga. Aðalmarkmið þessarar ritgerðar er, ólíkt fyrri rannsóknum, að kanna tilvist og fjölda þessara gripa í fornleifafræðilegu samhengi á 17. og 18. aldar Íslandi, athuga hvernig og hvenær þeir koma inn í íslenska fundaflóru og hvernig þeir dreifast eftir félagslegri og efnahagslegri stöðu og aðgang að marköðum. Þau neyslumynstur (e. consumption profiles) sem verða til úr þessum rannsóknum verða borin saman við neyslumynstur frá Norðvestur Evrópu. Þessi mynstur verða einnig nýtt til að nálgast skilning á þýðingu og nýtingu lúxusvarnings á Íslandi og hvort, og að hvaða leiti, hugtökin neyslubyltingin og neyslusamfélag eru eiga rétt á sér á þessum tíma á Íslandi eða hvort það eru aðrar leiðir til að skilja slíka neyslu. ...