Staða kynjanna fyrir og eftir opnun Héðinsfjarðarganga : Samgöngur, viðhorf til vinnumarkaðar og verkaskipting á heimilum

Í þessari grein er fjallað um áhrif Héðinsfjarðarganga á líf karla og kvenna í Fjallabyggð byggt á niðurstöðum íbúakannana sem lagðar voru fyrir í sveitarfélaginu 2009 og 2012. Áhrifin eru skoðuð út frá stöðu kynjanna í sveitarfélaginu og þeim breytingum sem göngin hafa haft í för með sér á hana og...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hjálmsdóttir, Andrea Sigrún, Hafþórsson, Atli
Other Authors: Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, Háskólinn á Akureyri
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/2787
Description
Summary:Í þessari grein er fjallað um áhrif Héðinsfjarðarganga á líf karla og kvenna í Fjallabyggð byggt á niðurstöðum íbúakannana sem lagðar voru fyrir í sveitarfélaginu 2009 og 2012. Áhrifin eru skoðuð út frá stöðu kynjanna í sveitarfélaginu og þeim breytingum sem göngin hafa haft í för með sér á hana og viðhorfum kynjanna. Í ljós komu áhugaverðar breytingar á þeim tíma sem konur og karla verja til ferða innan og utan Fjallabyggðar þar sem saman dregur með kynjunum því konur hafa aukið töluvert ferðatíma sinn. Ljóst má vera að þær miklu væntingar sem íbúar höfðu gert til breytinga á vinnumarkaði hafa ekki gengið eftir miðað við niðurstöður rannsóknarinnar en jákvæðar vísbendingar eru um jafnari verkaskiptingu á heimilum á milli kannana. Fyrstu vísbendingar um þróun samfélagsins í Fjallabyggð eftir opnun ganganna út frá kynjafræðilegu sjónarhorni gefa því ekki tilefni til að ætla að þau styrki í sessi hefðbundna verkaskiptingu kynjanna. Peer reviewed