Kulnun kennara og starfsaðstæður: Þróun og samanburður við aðra opinbera sérfræðinga

Frá efnahagshruninu 2008 hefur niðurskurður fjármagns leitt til þess meðal annars að minna svigrúm hefur gefist til að takast á við brýn úrlausnarefni í skólastarfi. Vísbendingar eru um að líðan kennara hafi versnað frá árinu 2008 og því er mikilvægt að kanna hvort breytingar hafi orðið á einkennum...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Netla
Main Authors: Einarsdóttir, Sif, Erlingsdóttir, Regína Bergdís, Björnsdóttir, Amalía, Snorradóttir, Ásta
Other Authors: School of education (UI), Menntavísindasvið (HÍ), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Menntavísindastofnun, Menntavísindasvið, Háskóli Íslands 2019
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/2604
https://doi.org/10.24270/netla.2019.12
Description
Summary:Frá efnahagshruninu 2008 hefur niðurskurður fjármagns leitt til þess meðal annars að minna svigrúm hefur gefist til að takast á við brýn úrlausnarefni í skólastarfi. Vísbendingar eru um að líðan kennara hafi versnað frá árinu 2008 og því er mikilvægt að kanna hvort breytingar hafi orðið á einkennum kulnunar frá fyrri rannsóknum meðal grunnskólakennara á árunum 1999 og 2005. Sami spurningalisti og notaður var í fyrri rannsóknum, Maslach Burnout Inventory (MBI-ES) var lagður fyrir 515 grunnskólakennara í Reykjavík. Konur voru 85%, karlar 15% og svarhlutfallið var 38%. Einnig voru lagðir fyrir listar sem meta annars vegar örmögnunarröskun (The Karolinska Emotional Exhaustion Scale – KEDS) og hins vegar starfsaðstæður (Job Demands-Resource Scale – JDRS). Í ljós kom að einkenni kulnunar meðal grunnskólakennara hafa aukist frá því fyrir hrun, einkum tilfinningaþrot, en grunnskólakennarar meta starfsárangur enn nokkuð mikinn og finna varla til hlutgervingar gagnvart nemendum. Um 42% grunnskólakennara mæta greiningarviðmiðum fyrir örmögnunarröskun samanborið við 31–38% félagsmanna BHM. Hvað starfsaðstæður varðar meta grunnskólakennarar álag mikið en telja sig hafa tækifæri til að vaxa í starfi og fá stuðning frá stofnun, t.d. stjórnendum. Grunnskólakennarar finna til starfsöryggis en þeir hafa ekki mikla möguleika á framgangi í starfi. Álag reyndist hafa sterkust tengsl við kjarnaeinkenni kulnunar, tilfinningaþrot, í líkani Maslach og einnig örmögnunarröskun. Möguleikar til vaxtar í starfi og stuðningur stofnunar virðast hafa verndandi áhrif. Niðurstöður sýna að kulnun hefur aukist og mikilvægt er að huga að starfsaðstæðum grunnskólakennara, sérstaklega of miklu álagi. Ástæður þessa mikla álags geta verið margvíslegar en hugsanlega má rekja þær til hegðunarvanda í nemendahópi, skorts á viðeigandi úrræðum í málefnum nemenda sem veita þarf sérstakan stuðning, aukins foreldrasamstarfs og almenns virðingarleysis gagnvart kennarastarfinu í samfélaginu. Teachers are among professionals exposed to burnout because of ...