Yfirfærsla á málaflokki fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga: Með sérstakri áherslu á stærsta sveitarfélagið, Reykjavík

Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvernig yfirfærsla á málaflokki fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga hefði gengið fyrir sig. Heildarferli yfirfærslunnar var skoðað og síðan var eitt sveitarfélag, Reykjavíkurborg, valið og skoðað nánar með tilliti til stefnu og framkvæmdar á þjónustunni við...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla
Main Authors: Freysteinsdóttir, Freydís Jóna, Jónsson, Gylfi
Other Authors: Félagsráðgjafardeild (HÍ), Faculty of Social Work (UI), Félagsvísindasvið (HÍ), School of Social Sciences (UI), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands 2016
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/259
https://doi.org/10.13177/irpa.a.2016.12.2.12
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvernig yfirfærsla á málaflokki fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga hefði gengið fyrir sig. Heildarferli yfirfærslunnar var skoðað og síðan var eitt sveitarfélag, Reykjavíkurborg, valið og skoðað nánar með tilliti til stefnu og framkvæmdar á þjónustunni við fatlað fólk. Um var að ræða eigindlega rannsókn sem fór fram haustið 2012. Tekin voru átta viðtöl við fagaðila sem höfðu komið beint að vinnu við yfirfærsluna eða unnið við málaflokkinn fyrir og eftir yfirfærslu. Tekið var viðtal við starfsmenn hjá velferðarráðuneytinu og hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar eru sex talsins, eitt viðtal var tekið á hverri þjónustumiðstöð og leitast var við að fá viðmælanda sem var hvað mest inni í málaflokknum. Helstu niðurstöður voru þær að viðmælendur töldu almennt séð rétt að ráðist skyldi hafa verið í yfirfærsluna. Þeir töldu að þjónusta í nærsamfélaginu væri heppilegri kostur og nú þyrfti þjónustuþeginn aðeins að fara á einn stað til þess að sækja sér þjónustu, jafnvel þó að ekki hefðu orðið eins miklar framfarir í þjónustunni og búist hefði verið við. Þeir töldu þó að töluvert fjármagn vantaði í málaflokkinn til að tryggja viðeigandi þjónustu og að yfirfærslan hefði ekki verið nægilega vel undirbúin. Viðmælendur voru á því að þverfagleg vinna gengi vel í málaflokknum. The aim of this study was to examine how the transfer of the affairs of disabled people from the state to the municipalities had proceeded. The process of the transfer was examined and then the largest municipality, Reykjavík, was chosen for a closer examination on the policy and implementation concerning services for disabled people. A qualitative study was conducted in the autumn of 2012. Eight interviews were taken with key professionals who had been involved directly in the transfer or worked on the affairs of disabled people before or after the transfer. A specialist in the affairs of disabled people was interviewed at the Ministry of Welfare and at the Association of ...