Menntun og þátttaka í nýju landi: Reynsla innflytjenda, flóttafólks og skóla

Fólki af erlendum uppruna hefur fjölgað mjög á Íslandi undanfarna áratugi. Menntakerfi gegna mikilvægu hlutverki við aðlögun barna og ungmenna að nýju samfélagi og við að stuðla að lýðræðislegri þátttöku þeirra. Markmið þessarar yfirlitsgreinar er að varpa ljósi á helstu niðurstöður nýlegra rannsókn...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Tímarit um uppeldi og menntun
Main Author: Ragnarsdottir, Hanna
Other Authors: Menntavísindasvið (HÍ), School of education (UI), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: The Educational Research Institute 2019
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/2571
https://doi.org/10.24270/tuuom.2019.28.7
Description
Summary:Fólki af erlendum uppruna hefur fjölgað mjög á Íslandi undanfarna áratugi. Menntakerfi gegna mikilvægu hlutverki við aðlögun barna og ungmenna að nýju samfélagi og við að stuðla að lýðræðislegri þátttöku þeirra. Markmið þessarar yfirlitsgreinar er að varpa ljósi á helstu niðurstöður nýlegra rannsókna höfundar og samstarfsfólks um málefni barna og ungmenna af erlendum uppruna. Fjallað er um reynslu innflytjenda og flóttafólks af menntun og þátttöku í íslensku samfélagi, reynslu kennara og stjórnenda af menntun barna og ungmenna af ólíkum uppruna, hvernig skólastarf hefur þróast til að mæta þörfum sífellt fjölbreyttari nemendahópa og hvaða leiðir eru færar í menntun fjölbreyttra hópa. Niðurstöður rannsóknanna benda til þess að mörg barnanna og ungmennanna hafi upplifað ýmsa erfiðleika í íslenskum skólum og frístundastarfi. Þrátt fyrir margs konar styrkleika sem þau telja sig hafa eiga þau í erfiðleikum með að læra íslensku og að tengjast íslenskum jafnöldrum. Samskipti heimila og skóla eru í sumum tilvikum ómarkviss og ófullnægjandi. Ein þessara rannsókna varpar þó ljósi á fjölmörg dæmi um öflugt og gott skólastarf, að nokkru leyti í anda fjölmenningarlegrar menntunar, þar sem áhersla er á lýðræðislega þátttöku og þar sem börnum og ungmennum af erlendum uppruna vegnar vel. Immigration to Iceland has increased rapidly in recent decades. People move to the country for different reasons, some as refugees. Education systems play a vital role in the integration of children and youth to a new society and in supporting their democratic participation. To be able to fulfill these roles, schools must to adjust to the needs of diverse groups of students and develop their practices according to demographic changes. The article, which presents an overview of literature, discusses the experiences of immigrants and refugees in Iceland of education and participation in Icelandic society. The article draws on research conducted with several groups of students at different school levels and their families the last 20 years. The ...