Tengsl stoðkerfiseinkenna íslenskra ungmenna við vinnu með skóla

Publisher's version (útgefin grein) Inngangur Einkenni frá stoðkerfi eru algeng meðal unglinga og vitað er að slík einkenni á unglingsárum geta leitt til langvarandi stoðkerfisvandamála á fullorðinsárum. Stoðkerfisvandamál eru vaxandi meðal vinnandi fullorðins fólks og með algengari orsakaþáttu...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Author: Einarsdóttir, Margrét
Other Authors: Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild (HÍ), Faculty of Sociology, Anthropology and Folkloristics (UI), Félagsvísindasvið (HÍ), School of Social Sciences (UI), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Laeknabladid/The Icelandic Medical Journal 2019
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/1937
https://doi.org/10.17992/lbl.2019.02.216
Description
Summary:Publisher's version (útgefin grein) Inngangur Einkenni frá stoðkerfi eru algeng meðal unglinga og vitað er að slík einkenni á unglingsárum geta leitt til langvarandi stoðkerfisvandamála á fullorðinsárum. Stoðkerfisvandamál eru vaxandi meðal vinnandi fullorðins fólks og með algengari orsakaþáttum örorku, sérstaklega meðal kvenna. Rannsóknir skortir hins vegar á tengslum stoðkerfiseinkenna ungmenna og vinnu með skóla. Markmið Rannsóknin skoðar tengsl milli fjögurra tegunda stoðkerfisvandamála (verkja í baki, í vöðvum og liðum, í hálsi og herðum og vöðvabólgu) við umfang vinnu með skóla meðal íslenska ungmenna eftir kyni, aldri og menntunarstöðu foreldra. Efniviður og aðferðir Rannsóknin byggir á spurningakönnun sem var framkvæmd á fyrri hluta árs 2018. Tilviljunarkennt úrtak 2800 ungmenna á aldrinum 13-19 ára var valið úr Þjóðskrá. Svarhlutfall var 48,6%. Ungmennin voru spurð hversu oft þau hefðu fundið fyrir verkjum síðasta árið og skipt í þrjá hópa þeirra sem ekki vinna með skóla, eru í hóflegri vinnu með skóla (≤12 klst./viku og/eða hafa ekki fastan vinnutíma) og í mikill vinnu (>12 klst./viku með skóla og hafa fastan vinnutíma). Kí-kvaðrat próf var notað til að mæla marktækni. Niðurstöður Rannsóknin sýnir að ungmenni sem vinna mikið með skóla eru líklegri til að finna stundum eða oft fyrir öllum tegundum stoðkerfiseinkennanna en þau sem vinna ekki með skóla. Tengslin haldast við bakverki óháð lýðfræðilegum þáttum og við öll stoðkerfiseinkennin fjögur hjá stúlkum. Ályktun Bæta þarf vinnuaðstæður íslenskra ungmenna þannig að þær ýti ekki undir einkenni frá stoðkerfi. Huga þarf sérstaklega að vinnuaðstæðum stúlkna og að þáttum sem ýta undir bakverki. Introduction: Musculoskeletal symptoms are common in adolescence, and may predispose a person to more occurrences in adulthood. Musculoskeletal problems have increased in the adult work force in recent years, becoming one of the most common causes of worker's disability, particularly among women. However, there is a lack of research on the association between ...