Sérfræðingskápan- nám í hlutverki: Rannsókn á notkun kennsluaðferða leiklistar í skólastarfi með ungum börnum.

Í þessari grein er sagt frá rannsókn á notkun kennsluaðferðarinnar sérfræðingskápunnar í íslensku skólastarfi. Aðferðin er á sviði leiklistar í kennslu og byggist á því að nám nemenda fari fram í hlutverki sérfræðinga í tilteknu viðfangsefni innan ímyndunarheims. Þannig læra nemendur í gegnum frjáls...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Björnsson, Hákon Sæþór, Ragnarsdóttir, Ása Helga
Other Authors: Menntavísindasvið (HÍ), School of Education (UI), Háskóli Íslands (HÍ), University of Iceland (UI)
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Menntavísindastofnun Háskóla Íslands 2018
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/1595
Description
Summary:Í þessari grein er sagt frá rannsókn á notkun kennsluaðferðarinnar sérfræðingskápunnar í íslensku skólastarfi. Aðferðin er á sviði leiklistar í kennslu og byggist á því að nám nemenda fari fram í hlutverki sérfræðinga í tilteknu viðfangsefni innan ímyndunarheims. Þannig læra nemendur í gegnum frjálsan ímyndunarleik en fjölmargir fræðimenn telja hann vera náttúrulega leið barna til náms og þroska. Rannsóknin var starfendarannsókn og fór fram haustið 2016. Þátttakendur í rannsókninni voru þrír kennarar og 41 nemandi 2. bekkjar í grunnskóla í Reykjavík. Gagna var aflað með rannsóknardagbók, myndbandsupptökum, samtölum við kennara og viðtölum við nemendur. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvernig kennsluaðferðin sérfræðingskápan nýtist kennara í starfi og hvaða áhrif það hefur á kennsluhætti hans að greina það nám sem fram fer í skólastofunni þegar nemendur bregða sér í hlutverk í námi sínu. Rannsóknarspaurningin var: Hvernig tekst að nota sérfræðingskápuna í kennslu og hvaða áhrif hefur notkun hennar á kennslu? Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að notkun rannsakenda á sérfræðingskápunni hafi bætt upplifun nemenda af námi. Þá virðist notkun sérfræðingskápunnar geta stuðlað að tilfinningalegri hvatningu í náminu fyrir nemendur. Áhugi nemenda virtist aukast þegar þeir upplifðu spennu í náminu og það jók afköst þeirra. Niðurstöðurnar benda til þess að frekari rannsóknir á notkun sérfræðingskápunnar í íslensku skólastarfi séu æskilegar til þess m.a. að kanna betur áhrif notkunarinnar á námsárangur. Niðurstöðurnar ættu einnig að vera kennurum hvatning til að kynna sér aðferðina og nota hana í eigin kennslu, auka vægi ímyndunarleiks í námi og auka þannig áhuga nemenda á því sem fram fer í skólanum. Ritrýnd grein