Summary: | Lækningamáttur Bláa Lónsins var uppgötvaður af sórasjúklingum skömmu eftir myndun þess og hafa jákvæð áhrif böðunar í lóninu verið staðfest í klínískum rannsóknum. Enn fremur hefur verið sýnt að böðun í lóninu samhliða UVB meðferð sé árangursríkari en UVB meðferð ein og sér. Þrátt fyrir vinsældir lónsins er lítið vitað um hvernig það hefur áhrif á sóra. Blágrænþörungurinn Cyanobacterium aponinum er ríkjandi lífvera í jarðsjó Bláa Lónsins og framleiðir hann utanfrumufjölsykru (EPS-Ca) sem hann seytir í umhverfi sitt. Tilgáta okkar er að EPS-Ca hafi áhrif á ónæmiskerfið sem geti tekið þátt í að miðla þeim bata sem sórasjúklingar fá við böðun í lóninu. Tilgangur verkefnisins var að kanna verkun og verkunarmáta EPS-Ca í frumum sem taka þátt í meingerð sóra. Utanfrumufjölsykran EPS-Ca var einangruð úr floti C.aponium ræktar frá Bláa Lóninu. Angafrumur, sérhæfðar út frá einkjörnungum, voru ræstar með boðefnunum IL-1β og TNF-α og inneitri (LPS) með eða án EPS-Ca í 24 tíma. CD4+ T frumur úr mönnum voru örvarðar með mótefnum gegn CD3 og CD28 í 72 tíma með eða án EPS-Ca síðasta sólarhringinn. Hyrnisfrumur, fengnar frá ATCC, voru örvaðar með TNF-α og annaðhvort IFN-γ eða IL-17A og meðhöndlaðar með eða án EPS-Ca í 24 tíma. Áhrif EPS-Ca voru metin með því að mæla styrk boðefna í floti frumna með ELISA aðferð, tjáningu innanfrumu- og yfirborðssameinda með frumuflæðisjá og lagsjármyndum, og mRNA tjáningu með rauntíma PCR. Angafrumur þroskaðar í návist EPS-Ca juku seytun þeirra á ónæmisbælandi boðefninu IL-10. Angafrumur þroskaðar í návist EPS-Ca ræstu einnig og sérhæfðu ósamgena CD4+ T frumur í samrækt í T bælifrumur (Treg) á kostnað sérhæfingar þeirra í sjúkdómshvetjandi Th17 frumna. Ennfremur tjáðu angafrumur meðhöndlaðar með EPS-Ca meira af yfirborðssameindinni CD141 en angafrumur þroskaðar án EPS-Ca. CD141 er yfirborðssameind sem hefur verið tengd bæli-angafrumum og niðurstöðurnar sýndu að CD141 jákvæðar angafrumur seyttu meira af IL-10 en angafrumur sem tjáðu ekki CD141. Hins vegar dró EPS-Ca meðhöndlun úr tjáningu ...
|