Hlutverk lækna í hagræðingu innan heilbrigðiskerfisins [ritstjórnargrein]

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Á Læknadögum í janúar 2010 stóð ég fyrir málþingi um hlutverk lækna í hagræðingu innan heilbrigðiskerfisins. Frummælendur á þinginu voru sex góðir kollegar sem komu úr hinum ýmsu sérgreinum l...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurður Böðvarsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/98995
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Á Læknadögum í janúar 2010 stóð ég fyrir málþingi um hlutverk lækna í hagræðingu innan heilbrigðiskerfisins. Frummælendur á þinginu voru sex góðir kollegar sem komu úr hinum ýmsu sérgreinum læknisfræðinnar. Þetta voru þau Óskar Reykdalsson heilsugæslulæknir, Michael Clausen barnalæknir, Engilbert Sigurðsson geðlæknir, Helgi Sigurðsson krabbameinslæknir, Elísabet Benedikz bráðalæknir og Þorbjörn Guðjónsson hjartalæknir. Þingið var vel sótt og nú hefur Læknablaðið ákveðið að gera því góð skil með birtingu samantektar á framsögu hvers læknis í næstu tölublöðum. Óskar Reykdalsson ríður á vaðið að þessu sinni. Heilbrigðisþjónusta er um margt sérstæð þjónusta. Eftirspurn eftir henni er takmarkalaus en bjargir (resources) takmarkaðar. Því er það deginum ljósara að ekki er hægt að gera allt fyrir alla. Forgangsröðun á því hvernig við ætlum að verja fjármunum til heilbrigðisþjónustu er því óhjákvæmileg og því fyrr sem við gerum okkur grein fyrir því, því betra. Mörgum þykir óþægilegt að ræða forgangsröðun og á það jafnt við um lækna og stjórnmálamenn. Hvorum hópnum um sig þykir forgangsröðun eiginlega vera einkamál hins. Ég er þeirrar skoðunar að í þessu sem öðru eigi að fara saman þekking, reynsla og ábyrgð. Því sé forgangsröðun verkefni lækna. Læknar verða í þessu tilliti að hafa í huga aldagömul siðalögmál sín og heit við sjúklinga um leið og þeim ber að sýna ábyrgð gagnvart samfélagi, það er þriðja aðila sem stendur straum af kostnaði við þjónustuna að mestu leyti. Þessi hlutverk lækna eiga ekki að vera andstæð, heldur eiga hagsmunir sjúklinga og samfélags vel að geta farið saman og það er lækna að gæta hagsmuna þeirra beggja.