Já, saga læknisfræðinnar! [ritstjórnargrein]

Hægt er að lesa greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Saga læknisfræðinnar hefur verið í brennidepli að undanförnu. Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar varð 40 ára á árinu og félagið hélt 20. norræna þingið um sögu læknisfræðinnar í Háskóla Íslands dagana 10.-13. ágúst s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Atli Þór Ólason
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/9782
Description
Summary:Hægt er að lesa greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Saga læknisfræðinnar hefur verið í brennidepli að undanförnu. Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar varð 40 ára á árinu og félagið hélt 20. norræna þingið um sögu læknisfræðinnar í Háskóla Íslands dagana 10.-13. ágúst síðastliðinn. Þetta er í þriðja skipti sem þing Norrænu lækna­sögusamtakanna er haldið á Íslandi. Í samtökunum eru 25 aðildarfélög með um það bil 5000 félagsmenn. Ráðstefnuna sóttu um 170 manns frá 16 löndum. Á boðstólum var fjölbreytt efni: 60 fyrirlestrar og veggspjöld. Yfirskrift þingsins var ?Sjúklingur og samfélag í sögulegu ljósi? og var sérstök áhersla lögð á sérstöðu heilbrigðissögu á norðlægum slóðum. Fjallað var um faraldsfræði í norðurálfu og læknisfræði víkinganna eins og hún birtist í Íslendingasögunum, á skinnhandritum og við fornleifauppgröft. Þáttur kvenna í heilbrigðissögu var skoðaður sérstaklega ásamt sögu tannlækna, lyfjafræðinga og heimilislækna. Við opnun þingsins í Þjóðmenningarhúsinu veitti félagið tvo heiðurspeninga. Annan fékk formaður Augustinus fonden í Danmörku, en sjóðurinn veitti rausnar­legan styrk til Nesstofusafnsins. Hinn fékk Ís­lands­vinurinn og læknirinn góðkunni Povl Riis sem hafði milligöngu um styrkinn. Farin var dagsferð á Snæfellsnes og dregin fram atriði er tengjast lækningasögu. Gestirnir voru ánægðir með þingið og upplifun sína af landinu og sögu þess.