Sýklun í hálsi aldraðra

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Nýleg athugun á orsökum lungnabólgu á Borgarspítala leiddi í ljós að ekkert tilfella spítalalungnabólgu reyndist af völdum Gram-neikvæðra stafbaktería. Undanfari flestra lungnabólgna er talin...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Haraldur Briem
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/96833
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Nýleg athugun á orsökum lungnabólgu á Borgarspítala leiddi í ljós að ekkert tilfella spítalalungnabólgu reyndist af völdum Gram-neikvæðra stafbaktería. Undanfari flestra lungnabólgna er talin sýklun (colonization) baktería í hálsi og hefur algengi sýklunar Gram-neikvæðra stafbaktería hjá ýmsum sjúklingahópum verið allt frá 2% til 40% í fyrri rannsóknum. Lítið er hins vegar vitað um faraldsfræði sýklunar af þessu tagi og sérstaklega ekki hvernig og hvort hún breytist með tíma, þar sem flestar fyrri athuganir hafa beinst að algengi eingöngu. Sýklun í hálsi sjúklinga á öldrunarlækningadeild var því könnuð, bæði með sneiðrannsókn (cross-sectional), þar sem ein ræktun var tekin úr hálsi hvers sjúklings án tillits til legutíma, og langtímarannsókn (longitudinal), þar sem hálsræktanir voru teknar vikulega frá innlögn til útskriftar. Til samanburðar voru annars vegar gerðar sneiðrannsóknir á öldruðum einstaklingum á vistheimili og hins vegar á einstaklingum er bjuggu á eigin heimilum. Frá 23,1% sjúklinga í sneiðrannsókninni, sem á sjúkradeild voru, ræktuðust Gram-neikvæðar stafbakteríur, en einungis frá 6,7-9,5% hinna. Við langtímarannsóknina reyndist sýklun vera mjög óstöðug, og minnkaði hlutfall sýklaðra einstaklinga úr 23% við komu á sjúkradeild í 7% á 10. viku sjúkrahúsvistar. Frá einungis 14% sjúklinga með jákvæðar ræktanir ræktaðist sama bakteríutegund í þrjár vikur eða meira samfleytt. S. aureus fannst einungis örsjaldan. Í aðeins einu tilviki var unnt að sýna fram á sýklun sem undanfara og mögulega orsök öndunarfærasýkingar. Niðurstöður þessar gefa til kynna að sýklun í hálsi aldraðra er skammæ og er ekki með vissu áhættuþáttur öndunarfærasýkinga meðal þeirra.