Ristilkrabbamein á Borgarspítala 1975-1987 og lífshorfur eftir aðgerð

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Ristilkrabbamein er eitt algengasta krabbameinið hérlendis, þriðja í röðinni hjá konum og það fjórða í körlum. Tíðnin vex með aldrinum og fjöldi þeirra eykst því með vaxandi fjölda eldra fólk...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Jónas Magnússon, Guðlaug Þorsteinsdóttir, Páll Helgi Möller
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/96182
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Ristilkrabbamein er eitt algengasta krabbameinið hérlendis, þriðja í röðinni hjá konum og það fjórða í körlum. Tíðnin vex með aldrinum og fjöldi þeirra eykst því með vaxandi fjölda eldra fólks. Upplýsingar um lífslíkur m.t.t. stigunar eftir aðgerð liggja ekki fyrir hérlendis. Tilgangur rannsóknarinnar var að ákvarða lífslíkur eftir aðgerð vegna ristilkrabbameins á skurðdeild Borgarspítalans. Afturvirk rannsókn var gerð á þeim sjúklingum skurðdeildar Borgarspítalans, sem gengust undir aðgerð vegna ristilkrabbameins 1975-1987. Dukes-flokkun var notuð við stigun sjúkdómsins. Lifun var metin með líftöflu að hætti Kaplan-Meyer og miðast við 1. janúar 1989. Alls fundust 165 sjúklingar, 89 konur og 76 karlar. Þrettán sjúklingar féllu í Dukes-stig A, 71 sjúklingur í Dukes-stig B og 28 í Dukes-stig C. Sextíu og sex æxli voru í hægri hluta ristilsins, 23 æxli í þverristli, 15 í vinstri hluta ristilsins og 59 í bugaristli. Heildardánartala eftir aðgerð var "5%. Dánartala eftir læknandi aðgerð var ~ 2%, eftir líknandi aðgerð 11%. Líkindin á fimm ára lifun reyndust svipuð í Dukes-stigi A og B eða í kringum 65-70%, en í kringum 40% við Dukes-stig C. Ef um líknandi aðgerð var að ræða voru ekki líkindi á lifun eftir þrjú ár frá aðgerð. Það er athyglisvert að tæplega þriðjungur sjúklinga er ólæknandi við greiningu. Aðeins helmingur sjúklinga fellur í hóp Dukes-A eða B. Dánartala við aðgerð er lág. Ef einhver stórbreyting til batnaðar á að verða á lifun við þennan sjúkdóm, verður að greina hann fyrr.