Miðeyrnabólga : orsakir og forspárgildi nefkoksræktunar

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Miðeyrnabólga (otitis media) er einn algengasti kvilli sem börn hrjáir, og benda erlendar og nýleg hérlend rannsókn til að við þriggja ára aldur hafi um 65-70% barna fengið bráða miðeyrnabólg...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Helga Erlendsdóttir, Einar Thoroddsen, Sigurður Stefánsson, Magnús Gottfreðsson, Haraldur Briem, Sigurður Guðmundsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/92858
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Miðeyrnabólga (otitis media) er einn algengasti kvilli sem börn hrjáir, og benda erlendar og nýleg hérlend rannsókn til að við þriggja ára aldur hafi um 65-70% barna fengið bráða miðeyrnabólgu a.m.k. einu sinni. Engar kannanir hafa hins vegar farið fram á orsökum sjúkdómsins hér á landi og var því athugun þessi gerð. Jafnframt var leitast við að meta forspárgildi ræktunar frá nefkokssýni um sýkingarvalda í miðeyra. Til rannsóknarinnar völdust 159 börn á aldrinum sex mánaða til tólf ára (meðalaldur tvö ár) sem leituðu til háls-, nef- og eyrnadeildar Borgarspítala á tímabilinu nóvember 1988 til janúar 1990 vegna bráðrar miðeyrnabólgu. Var rannsókn þessi hluti af samanburðarrannsókn á amoxicillíni og lóracarbef og var gerð í samvinnu við lyfjafyrirtækið Eli Lilly & Co. Greining var staðfest með klínískri skoðun og var sýni tekið til ræktunar með ástungu á hljóðhimnu (tymphanocentesis) í öllum tilvikum (á báðum eyrum í 35 tilvikum). Jafnframt var tekið sýni úr nefkoki 148 barna. »Jákvætt« strok frá nefkoki var skilgreint sem sýni er úr óx sami sýkill og frá ástungu á hljóðhimnu. Reiknað var næmi (sensitivity), sértæki (specificity), jákvætt og neikvætt forspárgildi fyrir þessi tengsl. Eru hér eingöngu kynntar niðurstöður bakteríuræktana. Frá 75 af 159 miðeyrnasýnum (47%) uxu 84 sjúkdómsvaldar og skiptust eftir tegundum sem hér segir: S. pneumoniae (41%), H. influenzae (38%), B. catarrhalis (7%), S. aureus (4%), S. pyogenes (1%), peptococcus (1%), Gram-neikvæðir stafir/aðrir (7%). Af H. influenzae stofnum framleiddu 9 (28%) /3-lactamasa en hinsvegar allir B. catarrhalis stofnanna. Tilvist sýkils í nefkoki sagði lítt . fyrir um tilvist sama sýkils í eyra, og var jákvætt forspárgildi þegar litið var til allra sýkla einungis 45%. Fyrir S. pneumoniae reyndist jákvætt forspárgildi vera 29%, fyrir H. influenzae 36% og fyrir B. catarrhalis 8%. Algengustu orsakir bráðrar miðeyrnabólgu í þessari rannsókn voru S. ...