Er staðbundin slitgigt í mjöðmum arfgeng? : sautján alsystkini með slitgigt í mjöðmum

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) A family with seventeen siblings was investigated. Fourteen of the siblings have confirmed coxarthrosis. The mother (born 1899) of the seventeen siblings has had bilateral total hip replaceme...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Þorvaldur Ingvarsson, Halldór Baldursson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2010
Subjects:
Hip
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/92354
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) A family with seventeen siblings was investigated. Fourteen of the siblings have confirmed coxarthrosis. The mother (born 1899) of the seventeen siblings has had bilateral total hip replacement and her mother (born in 1875) was crippled with coxarthrosis at an early age. Several more members of this family are known to have coxarthrosis. Their general health is good and symptoms are rare in other joints. Further studies are being carried out to chart the distribution of coxarthrosis in other generations of this family and to investigate how coxarthrosis may be inherited in this family. Slitgigt í mjöðmum er algeng, en upplýsingar um algengi hennar eru ekki til á Íslandi. Rannsóknir benda til þess að rúmlega 1% af Svíum 60 ára og yngri hafi slitgigt í mjöðmum og tæplega 7% af Svíum við 80 ára aldur (1). Slitgigt getur verið staðbundin, til dæmis í mjöðmum, eða útbreidd. Slitgigt í mjöðmum er skipt í tvo meginflokka eftir því hvort orsakir hennar eru þekktar eða ekki. Ef orsakir slitgigtar eru þekktar, er hún talin áunnin (secundary coxarthrosis). Ef orsök er óþekkt, er hún nefnd frum (primer) (2). Líkur hafa verið leiddar að því að öll slitgigt í mjöðmum sé áunnin (3,4), ýmist vegna bólgusjúkdóma, sýkinga, slysa eða byggingargalla. Frummjaðmarslitgigt sé í raun ekki til, heldur sé hún aðeins nefnd svo vegna þess að orsakir hennar eru ekki enn þekktar. Helstu þekktu orsakir áunnar staðbundinnar slitgigtar í mjöðmum eru eftirfarandi: Morbus Perthes, meðfædd liðskekking (subluxation), meðfætt liðhlaup, kastlos í lærleggshálsi, brot í lærleggshálsi, brot í augnkarli, liðhlaup vegna slyss, iktsýki, hryggikt (spondylitis ankylopoietica) og sóra (psoriasis) liðbólgur. Sumarið 1987 lagðist kona inn á bæklunardeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri til að fá gervilið í mjöðm vegna slitgigtar. Hún sagði svo frá að hún væri ein af sautján systkinum sem langflest hefðu slitgigt í mjöðmum, og nefndi að móðir og ...