Miðeyrnabólgur og miðeyrnavökvi í íslenskum börnum

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Til rannsóknarinnar sem hér er greint frá völdust 108 börn, sem meðhöndluð voru vegna miðeyrnabólgu á árunum 1986-1989. Hjá börnum með bráða miðeyrnabólgu ræktaðist H. influenzae í 54% í hreingróðri. Í þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Friðrik Kristján Guðbrandsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/87453
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Til rannsóknarinnar sem hér er greint frá völdust 108 börn, sem meðhöndluð voru vegna miðeyrnabólgu á árunum 1986-1989. Hjá börnum með bráða miðeyrnabólgu ræktaðist H. influenzae í 54% í hreingróðri. Í þeim tilvikum þar sem hljóðhimna hafði brostið vegna sýkingar, ræktaðist H. influenzae og S. pneumoniae saman í 58% sýna úr miðeyra. Í hópi barna með langvarandi vökvaslím í miðeyra kom í ljós, að enginn vöxtur reyndist vera í 60.5% sýna. S. aureus var algengasta bakterían sem óx úr sýnum frá börnum með langvarandi útferð úr miðeyra. Niðurstöður benda til þess að H. influenzae sé algengari í bráðri miðeyrnabólgu hérlendis en annars staðar. Jafnframt ræktast meinvaldandi bakteríur í 40% tilvika úr vökvaslími í miðeyra.