Ástæður þess að foreldrar barna sem greinst hafa með krabbamein myndu eða myndu ekki taka þátt í tölvutengdum stuðningshópi

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Tilgangur rannsóknarinnar var að greina ástæður þess að foreldrar barna, sem greinst hafa með krabbamein, myndu eða myndu ekki taka þátt í tölvutengdum stuðningshópi. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Helga Bragadóttir, Ingibjörg Björnsdóttir, Margrét Björnsdóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/87088
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Tilgangur rannsóknarinnar var að greina ástæður þess að foreldrar barna, sem greinst hafa með krabbamein, myndu eða myndu ekki taka þátt í tölvutengdum stuðningshópi. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu viðfangsefni en fyrri rannsóknir sýna góðan árangur tölvutengdra stuðningshópa. Um lýsandi rannsókn var að ræða þar sem öllum foreldrum barna, sem þegið höfðu meðferð við krabbameini á Landspítala á undangengnum 10 árum, var boðið að taka þátt. Í úrtaki voru 122, þar af 94 foreldrar lifandi barna og 28 foreldrar látinna barna. Gagna var aflað með póstkönnun og skriflegum spurningalista um lýðfræðilegar breytur og bakgrunnsbreytur og hugsanlegar ástæður fyrir þátttöku eða ekki í tölvutengdum stuðningshópi. Alls tóku 53 foreldrar þátt í rannsókninni. Tæplega helmingur þeirra myndi taka þátt í tölvutengdum stuðningshópi. Ekki mældist tölfræðilega marktækur munur á þeim sem myndu taka þátt og myndu ekki taka þátt hvað kyn, aldur, búsetu, menntun og atvinnuþátttöku varðaði (p≤0,05). Flestum fannst að Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna ætti að sjá um slíkan hóp. Meginástæður þátttöku eru að fá eða veita upplýsingar og stuðning auk þess að vera í sambandi við aðra foreldra með sambærilega reynslu. Foreldrar, sem myndu ekki taka þátt, telja þátttöku ekki munu hjálpa sér á nokkurn hátt og segjast fá nægan stuðning annars staðar. Hlutfallslega fleiri foreldrar látinna barna myndu taka þátt í tölvutengdum stuðningshópi. Nokkur hluti foreldra, sem ekki myndi taka þátt í tölvutengdum stuðningshópi, myndi frekar taka þátt í hefðbundnum stuðningshópi þar sem hist er augliti til auglitis. Niðurstöður benda til þess að nokkur hópur foreldra barna, sem greinst hafa með krabbamein, myndi vilja taka þátt í tölvutengdum stuðningshópi eða hefðbundnum stuðningshópi til þess að njóta gagnkvæms stuðnings fólks með sambærilega reynslu. The purpose of this study was to identify reasons for participation and non-participation in a ...