Summary: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Áreiðanleiki mismunar mælitalna undirprófa, prófhluta, vinnslustiga og klínískra klasa í stöðlunarúrtaki WISC-IVIS var athugaður. Áreiðanleikastuðlar mismunar undirprófa eru á bilinu 0,50 til 0,82 í stöðlunarúrtakinu í heild (Mg=0,75). Áreiðanleiki mismunar prófhluta er mun hærri en undirprófa. Áreiðanleiki mismunar prófhlutanna er lægstur í yngstu (sex til sjö ára) og elstu (16 til tæplega 17 ára) aldurshópunum í íslenska stöðlunarúrtakinu. Hæstur er áreiðanleiki mismunar á mælitölu Málstarfs og mælitölu Vinnsluminnis (Mg=0,86), þar á eftir mælitölu Skynhugsunar og mælitölu Vinnsluminnis (Mg=0,80) og loks mælitölu Málstarfs og mælitölu Skynhugsunar (Mg=0,80). Miðgildi áreiðanleikastuðla mismunar á klínískum klösum er á bilinu 0,66 (Eðlisgreind-Sjónúrvinnsla) til 0,82 (Langminni-Stundarminni). Áreiðanleiki mismunar vinnslustiga er lágur. Niðurstöðurnar styðja túlkun mismunar prófhluta og flestra klínískra klasa í WISC-IVIS. Túlkun mismunar undirprófa er réttlætanlegur í nokkrum tilvikum en áreiðanleiki mismunar vinnslustiga er of lágur til að réttlæta túlkun á honum. Reliabilities for subtest, index, process and clinical cluster discrepancy scores are provided in the Icelandic standardization sample of WISC-IV. Reliabilities of subtest discrepancy scores range from .50 to .82 (Mdn=J5). Reliabilities of index discrepancy scores are lowest for the youngest (six to seven year olds) and oldest (16 year olds) children in the Icelandic standardization sample. The highest reliabilities of index discrepancy scores are between Verbal Comprehension and Working Memory Index (Mdn=.S6), followed by Perceptual Reasoning and Working Memory Index (Mdn=.80), and Verbal Comprehension and Perceptual Reasoning Index (Mdn=.S0). The median reliability of clinical clusters discrepancy scores range from .66 (Fluid Reasoning vs. Visual Processing) to .82 (Long-Term Memory vs. Short-Term Memory). Reliabilities of process discrepancy ...
|