Summary: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Nýlega lauk mikilli könnun á mataræði Íslendinga á vegum Heilbrigðisráðuneytis og Manneldisráðs. Niðurstöður könnunarinnar sýna matarvenjur nútíma Íslendinga í allri sinni margbreytni, allt eftir aldri, kyni, búsetu og öðrum aðstæðum fólks, auk þess sem þær varpa ljósi á sérkenni íslensks mataræðis borið saman við aðrar þjóðir (1,2). Könnunin sýnir glöggt að íslenskt fæði er eindæma prótínríkt enda er fæða úr dýraríkinu óvenju fyrirferðamikil í neyslu Íslendinga. Flestir fá nægilegt magn nauðsynlegra næringarefna en þó er járn af skomum skammti í fæði kvenna á barneignaaldri og eins skortir bæði vitamin og steinefni í fæði margra aldraðra. Helsti ókostur á fæðuvenjum flestra fullorðinna Íslendinga er þó tvímælalaust of mikil fita en lítið af grænmeti og öðru jurtafæði. Að jafnaði veitir fita 41% af orku í fæði Íslendinga en samkvæmt manneldismarkmiðum væri æskilegt að hlutur fitu væri innan við 35% (3).
|