Algengi munar á munnlegri og verklegri greindartölu WPPSI-Ris

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Athugað var hvort algengi munar á verklegri og munnlegri greindartölu í íslensku stöðlunarúrtaki WPPSI-R væri mismunandi eftir heildartölu greindar. Í stöðlunarúrtakinu voru 817 börn á aldrinum þriggja á...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Einar Guðmundsson, Birgir Þór Guðmundsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Sálfræðingafélag Íslands 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/80645
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Athugað var hvort algengi munar á verklegri og munnlegri greindartölu í íslensku stöðlunarúrtaki WPPSI-R væri mismunandi eftir heildartölu greindar. Í stöðlunarúrtakinu voru 817 börn á aldrinum þriggja ára til sjö ára og þriggja mánaða (51,6% drengir og 48,4% stúlkur). Lág og ómarktæk fylgni var á milli heildartölu greindar og stærðargráðu munar á greindartölunum tveimur, óháð því hvor greindartalan var hærri. Meðaltal munar á verklegri og munnlegri greindartölu í stöðlunarúrtakinu í heild, þegar verkleg greindartala var hærri en munnleg (n = 383), var 12,9 en 11,9 þegar munnleg greindartala var hærri (n = 422). Munur af stærðinni 18 eða hærri á við um 12,3% barna í stöðlunarúrtakinu þegar munnleg greindartala er hærri en verkleg og 13,3% barna þegar verkleg greindartala er hærri en munnleg. Við túlkun á klínísku mikilvægi munar á munnlegri og verklegri greindartölu WPPSI-R í íslensku þýði er ljóst að taka verður mið af algengi munar á greindartölunum tveimur en ekki eingöngu hvort munurinn er tölfræðilega marktækur við 5% eða 1% mörkin. The Wechsler Preschool and Primary Scale of Intelligence - Revised standardization data in Iceland was analysed to determine the frequency of occurence for verbal and performance IQ s discrepancies. A total of 817 three to seven years, three months old children were in the standardization sample (51,6% boys and 48,4% girls). A low and insignificant correlation was found between Full Scale IQ and VIQ-PIQ discrepancies, irrespective of the size or direction of the discrepancy. Mean VIQ-PIQ discrepancies in the standardization sample was 12,9 when PIQ was higher than VIQ (n = 383) and 11,9 when VIQ was higher than PIQ (n = 422). A difference of 18 or higher applies to 12,3% of the children in the standardization sample when VIQ is higher than PIQ but 13,3% when PIQ is higher than VIQ. The results indicate that significant difference alone of verbal and performance IQ's discrepancies ...