Handleiðslumál fagfólks á Íslandi

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Handleiðsla er hugtak sem tengist meðferðarstörfum og stjórnun þjónustustofnana. Í greininni er fjallað um þróun handleiðslu og gerð grein fyrir íslenskri spurningakönnun sem send var 795 einstaklingum ú...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigrún Júlíusdóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Sálfræðingafélag Íslands 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/76484
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Handleiðsla er hugtak sem tengist meðferðarstörfum og stjórnun þjónustustofnana. Í greininni er fjallað um þróun handleiðslu og gerð grein fyrir íslenskri spurningakönnun sem send var 795 einstaklingum úr sex faghópum. Verkefnið var styrkt af Leónardó-áætlun Evrópusambandsins. Höfundur framkvæmdi könnunina í samstarfi við fulltrúa sex fagfélaga. Þeir sáu um dreifingu spurningalista. Faghóparnir voru geðhjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar, námsráðgjafar, sjúkraþjálfarar, og sálfræðingar. Markmið könnunarinnar var að fá heildaryfirlit yfir stöðu handleiðslumála og samanburð á reynslu faghópa og viðhorfum þeirra til handleiðslu í þeim tilgangi að greina hvaða úrræði eru fyrir hendi og geta metið þörf fyrir nám og þjálfun í handleiðslu. Svarshlutfall var 56%. Svörin úr hverjum hópi eru of fá til þess að tölfræðilegar forsendur leyfi mikla sundurgreiningu einstakra breyta eða samanburð á afmörkuðum atriðum. Fjallað er því aðallega um niðurstöðurnar í heild. Könnunin gefur upplýsingar um þörf fagfólks fyrir handleiðslu og hvernig það óskar sér fyrirkomulag og þjálfun. Einnig fást hér vísbendingar fyrir vinnuveitendur um hvernig megi hlú að fagfólki þannig að það njóti sín betur á vinnustað, skili þá væntanlega betri árangri og ílengist í starfi. Í umræðukafla er fjallað um gildi handleiðslu í meðferðarstörfum og margþættan tilgang í fageflingu og stjórnun. Supervision is a concept linked to therapeutic work, leadership and administration in human service organizations. In the article the results of a study on supervision are presented and the development and role of supervision is discussed. Questionnaires were sent to 795 professionals of six categories. The project was implemented with financial support from the European Leonardo Program (Icelandic Leonardo Center) The author who is an associate professor at the Dep. of Social Work at the University of Iceland conducted the study in cooperation with ...