Aldursbundið algengi mótefna gegn chlamydia pneumoniae á Íslandi

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Chlamydia pneumoniae er nýlega uppgötvaður sýkill, og bendir flest til að hann sé algeng orsök loftvegasýkinga. Markmið þessarar athugunar var að kanna algengi hans á Íslandi. Rannsóknin var gerð á 1020...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigurður Einarsson, Helgi K. Sigurðsson, Sólveig D. Magnúsdóttir, Helga Erlendsdóttir, Haraldur Briem, Sigurður Guðmundsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/76034
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Chlamydia pneumoniae er nýlega uppgötvaður sýkill, og bendir flest til að hann sé algeng orsök loftvegasýkinga. Markmið þessarar athugunar var að kanna algengi hans á Íslandi. Rannsóknin var gerð á 1020 sermisýnum frá einstaklingum á aldrinum 10-99 ára. Sýnunum var deilt í hópa eftir aldri einstaklinga og tók hver hópur til 10 ára tímabils. IgG og IgM mótefni voru mæld með flúrskinsaðferð (micro-immunofluorescence). Jákvæð sýni voru þau talin þar sem IgG titer var 1/32 og IgM >1/16. Meðalalgengi (istaðalfrávik) IgG í aldurshópunum var 53±16% og vikmörk (range) 14-66%. Hvorki reyndist kynja- né árstíðamunur á algengi. Algengi IgG mótefna var lægst hjá börnum undir 10 ára aldri (p<0,001) en fór síðan stigvaxandi til sjötugs (P<0,005). Í fyrstu atrennu greindust IgM mótefni hjá 34 einstaklingum og voru flestir þeirra í elstu aldurshópunum. Eftir að þessi sýni höfðu verið meðhöndluð með IgG mótefni úr geitum til að fella út sértæk trufiandi IgG mótefni var ekkert sýni IgM jákVætt. Samkvæmt þessum niðurstöðum er algengi C. pneumoniae sýkinga hátt á Íslandi og svipað því er greinst hefur í nálægum löndum austan hafs og vestan. Nauðsynlegt er að gæta varúðar við túlkun jákvæðra prófa úr IgM mótefnamælingum hjá eldra fólki.