Nýrnafrumukrabbamein á Íslandi 1971-1990 : nýgengi og sjúkdómseinkenni - klínísk rannsókn á 408 tilfellum

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Nýgengi nýrnafrumukrabbameins er mjög hátt á Íslandi. Einkenni þess eru lúmsk og meinið greinist seint. Lítið er vitað um hvernig sjúklingar með nýrnafrumukrabbamein greinast hérlendis. Tilgangur rannsók...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Tómas Guðbjartsson, Guðmundur V. Einarsson, Jónas Magnússon
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/75977
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Nýgengi nýrnafrumukrabbameins er mjög hátt á Íslandi. Einkenni þess eru lúmsk og meinið greinist seint. Lítið er vitað um hvernig sjúklingar með nýrnafrumukrabbamein greinast hérlendis. Tilgangur rannsóknar okkar var að kanna nýgengi nýrnafrumukrabbameins hér á landi, greiningu og hvernig staðið væri að rannsóknum. Afturskyggn klínísk rannsókn var gerð á öllum sjúklingum sem greindust á lífi með nýrnafrumukrabbamein á Íslandi árin 1971-1990, alls 408 sjúklingum. Skráð voru sjúkdómseinkenni og tímalengd einkenna fyrir greiningu. Einnig var athugað hversu margir sjúklingar greindust fyrir tilviljun og hvaða myndrannsóknum var beitt við greiningu. Nýgengi nýrnafrumukrabbameins á Íslandi 1971-1990 reyndist 10,5/100.000 karlar og 6,8/100.000 konur, þar á meðal 69 sjúklingar greindir við krufningu. Af 408 sjúklingum greindum á lífi höfðu 334 (82%) sjúkdómseinkenni og voru verkir í kviði/síðu, blóð í þvagi, þyngdartap og einkenni blóðskorts algengustu einkennin. Flestir höfðu haft einkenni í langan tíma (>3 mánuði) fyrir greiningu. Alls greindust 74 sjúklingar fyrir tilviljun (18%). Æxlið var langoftast greint með nýrnamynd. Meinvörp fundust hjá 170 sjúklingum (42%), þar af höfðu 74 stök meinvörp. Æxlisdröngull út í stóra grein nýrnabláæðar eða neðri holæð fannst hjá 81 sjúklingi (20%). Nýgengi nýrnafrumukrabbameins á Íslandi hefur haldist svipað síðustu tvo áratugi en er engu að síður hvergi hærra í heiminum. Sjúkdómseinkenni og vefjafræði æxlanna eru svipuð og erlendis en sjúkdómurinn greinist oft seint og stór hluti sjúklinga hefur meinvörp við greiningu. Til að bæta greiningu og þar með fækka sjúklingum sem greinast með meinvörp verða læknar að þekkja betur fjölbreytileg einkenni nýrnafrumukrabbameins.