Upphaf orþópedíu á Íslandi

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Orþópedía er fræðin um kvilla og slys á stoð- og hreyfikerfi lfkamans og meðferð þeirra. Enn hafa orðhagir Íslendingar ekki fundið nafn á þessa grein, því bæklunarskurðlækningar er orð sem fólk mælt á ís...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjarni Jónsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/75193
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Orþópedía er fræðin um kvilla og slys á stoð- og hreyfikerfi lfkamans og meðferð þeirra. Enn hafa orðhagir Íslendingar ekki fundið nafn á þessa grein, því bæklunarskurðlækningar er orð sem fólk mælt á íslenska tungu á bágt með að taka sér í munn. Hvers vegna skera orþópedar sig úr hópi annarra handlækna? Nú á tímum er þessi spurning líklega óþörf og svarið augljóst. Handlæknisfræði hefir þanist út svo geysilega - eins og læknisfræðin öll - að engum manni er fært að hafa þar yfirsýn að gagni. Hún hefir, af nauðsyn, klofnað niður í ýmsar deildir; þó stofninn sé einn eru greinarnar margar. Hvað skyldi þá hafa valdið því, að orþópedar tóku sig út úr hópi kírúrga svo snemma? Skyldi orsökin vera sú, að kírúrgar og orþópedar líta ekki mannslíkamann sömu augum og meðferð þeirra leggst í tvo farvegi?