Tími til breytinga? : markvissari meðferð langveikra [ritstjórnargrein]

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Talið er að fólki með langvinna sjúkdóma muni fjölga á næstu árum og áratugum enda möguleikar til meðferðar og líknar meiri en áður og fólk lifir lengur. Þjónusta við langveika er eflaust almennt góð en...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elínborg Bárðardóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/73034
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Talið er að fólki með langvinna sjúkdóma muni fjölga á næstu árum og áratugum enda möguleikar til meðferðar og líknar meiri en áður og fólk lifir lengur. Þjónusta við langveika er eflaust almennt góð en þó er víða pottur brotinn hér sem víðar enda hafa rannsóknir sýnt að talsverður fjöldi sjúklinga fær ekki bestu mögulegu þjónustu. Hluti af þeim vanda er að heilbrigðisþjónustan hefur verið byggð upp og þróuð sem bráðaþjónusta og ekki eins mikil áhersla verið lögð á þjónustu við langveika. Bent hefur verið á ýmsar ástæður fyrir skorti á góðri umönnun langveikra eins og til dæmis misfellur í samvinnu, samskiptum og samhæfingu þeirra sem sinna þjónustunni. Þannig má segja að við höfum hugvit og reynslu, húsnæði, tæki og tól en notum þó ekki þessar auðlindir nógu vel. Með öðrum orðum, við erum hugsanlega ekki að þjóna réttum sjúklingum á réttum tíma og á réttum stað með réttum meðferðarúrræðum. Stóra spurningin í mínum huga er því ekki HVORT við verðum að breyta áherslum okkar í umönnun langveikra heldur HVERNIG og HVENÆR. Svarið er ekki einfalt enda skiptar skoðanir á skipulagi, framkvæmd og stjórnun innan heilbrigðisþjónustunnar.