Hringormar í fólki á Íslandi árin 2004-2020

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Á árabilinu 2004-2020 voru 18 hringormslirfur (Nematoda) sendar til rannsókna og tegundagreiningar á sníkjudýradeild...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Karl Skírnisson
Other Authors: Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/622085
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Á árabilinu 2004-2020 voru 18 hringormslirfur (Nematoda) sendar til rannsókna og tegundagreiningar á sníkjudýradeild Tilraunastöðvarinnar að Keldum. Fjórtán lirfanna höfðu lifað tímabundið í fólki og voru lifandi þegar þær fundust, þrjár fundust lifandi í fiski sem fólk var að borða, ein fannst dauð. Pseudoterranova decipiens fannst í 16 tilvikum (89%), Anisakis simplex í tveimur (11%). Annað Anisakis-tilfellið var lirfa sem fannst spriklandi í bleyju barns sem talið var að hefði fengið lirfuna úr vanelduðum fiski á barnaheimili. Í hinu tilvikinu fannst dauð lirfa í soðinni ýsutuggu, sem barn, sem verið var að mata, spýtti út úr sér. Pseudoterranova-lirfur sem lifað höfðu í fólki (n=13) fundust oftast í munni (11 tilvik), í einu tilfelli fann móðir spriklandi lirfu í ælu barns, í öðru fannst hringormur hreyfa sig við endaþarmsop við þrif eftir salernisferð. Lengd lirfanna var 30 mm til 47 mm og voru þær taldar hafa lifað allt frá einum upp í 9 daga í fólkinu. Níu lirfanna höfðu þegar náð að þroskast upp á fjórða stig (L4), fjórar voru enn á þriðja stigi (L3). Þorskur var oftast nefndur sem uppspretta lirfanna (5 tilfelli af 14), tvær manneskjur töldu lirfurnar komnar úr steinbít, einn nefndi báðar þessar tegundir. Sushi eða skarkoli voru álitin uppsprettan í einu tilviki, einn smitaðist í sushi-veislu. Uppruninn var óþekktur í fjórum tilvikum. Oftast töldu menn sig hafa smitast í heimahúsi, þrír álitu sig hafa smitast á veitingastað, sama barn smitaðist tvisvar á barnaheimili og hafnarstarfsmaður smitaðist við að borða hráan fisk. During 2004-2020 in total 18 anisakid larvae (Nematoda) were sent in to the Laboratory of Parasitology at Keldur for investigation and species identification. Fourteen had temporarily lived within the human body and were alive when detected, three were noticed alive in food just before being consumed, one ...