Nýjungar í greiningu og meðferð lungnakrabbameins

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Lungnakrabbamein er annað algengasta krabbameinið á Íslandi hjá konum og þriðja hjá körlum. Þótt hægt hafi á nýgengi...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Hrönn Harðardóttir, Steinn Jónsson, Örvar Gunnarsson, Bylgja Hilmarsdóttir, Jurate Ásmundsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Vaka Ýr Sævarsdóttir, Sif Hansdóttir, Pétur Hannesson, Tómas Guðbjartsson
Other Authors: 1 Lungnalækningum Landspítala, 2 læknadeild Háskóla Íslands, 3 krabbameinslækningum, 4 rannsóknarstofu í meinafræði, 5 röntgendeild, 6 hjarta- og lungnaskurðlækningum Landspítala.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/621982
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Lungnakrabbamein er annað algengasta krabbameinið á Íslandi hjá konum og þriðja hjá körlum. Þótt hægt hafi á nýgengi sjúkdómsins á undanförnum árum dregur ekkert krabbamein fleiri Íslendinga til dauða. Einkenni lungnakrabbameins geta verið staðbundin en eru oftar almenns eðlis og á það stóran þátt í hversu margir sjúklingar greinast með útbreiddan sjúkdóm. Á síðustu árum hafa orðið miklar framfarir í greiningu og meðferð lungnakrabbameins. Tilkoma jáeindaskanna og berkjuómspeglunar hafa bætt stigun sjúkdómsins og gert meðferð markvissari. Lungnaskurðaðgerðir með brjóstholssjá hafa stytt legutíma og fækkað fylgikvillum, auk þess sem nýjungar í geislameðferð nýtast betur sjúklingum sem ekki er treyst í skurðaðgerð. Mestar nýjungar hafa þó orðið í lyfjameðferð útbreidds lungnakrabbameins. Þar hafa öflug líftæknilyf komið til sögunnar sem gera kleift að klæðskerasauma meðferðina út frá mælingum á stökkbreytingum og lífmörkum í æxlunum. Loks hafa nýlegar skimunarrannsóknir með lágskammta tölvusneiðmyndum sýnt marktæka lækkun á dánartíðni. Hér eru helstu nýjungar í greiningu og meðferð lungnakrabbameins reifaðar með hliðsjón af þeim framförum sem orðið hafa og er sérstaklega vísað til íslenskra rannsókna. Lung cancer is the second and third most common cancer in Iceland for females and males, respectively. Although the incidence is declining, lung cancer still has the highest mortality of all cancers in Iceland. Symptoms of lung cancer can be specific and localized to the lungs, but more commonly they are unspecific and result in significant diagnostic delay. Therefore, majority of lung cancer patients are diagnosed with non-localized disease. In recent years, major developments have been made in the diagnosis and treatment of lung cancer. Positive emission scanning (PET) and both transbroncial (EBUS) or transesophageal ultrasound (EUS) ...