Aldursgreining út frá tannþroskastigum barna og ungmenna á Íslandi

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Rannsóknir sýna nauðsyn þess að mynda gagnabanka fyrir þroska tanna hjá hverri þjóð og bera saman við samsvarandi ran...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigríður Rósa Víðisdóttir, Svend Richter
Other Authors: Tannlæknadeild Háskóla Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Tannlæknafélag Íslands 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/621435
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Rannsóknir sýna nauðsyn þess að mynda gagnabanka fyrir þroska tanna hjá hverri þjóð og bera saman við samsvarandi rannsóknir. Þessi rannsókn er sú fyrsta sem gerð er á þroskastígi tanna á íslensku þýði og nær yfir aldursbilið 4-24 ár. Rannsóknin styður störf réttartannlækna í aldursgreiningum, tannlækna, lækna, mannfræðinga, fornleifafræðinga og annarra stétta sem þurfa að nota þroska og þroskastig við greiningu og meðferð barna og ungmenna í starfi sínu. Í rannsókn þessari sem er afturvirk þversniðsrannsókn, er tannþroski ákvarðaður í 1100 íslenskum börnum og ungmennum af breiðmyndum (OPG). Fyrstu 100 voru notaðar í forrannsókn en hinar 1000 í rannsóknina sjálfa. Í heild voru 23 einstaklingar útilokaðir úr rannsókninni. Þýðið var samansett af 508 stúlkum og 469 drengjum á aldrinum 4-24 ára og notað var staðlað stigakerfi tannþroska til að ákvarða þroskastig. Samtals voru 200 OPG skoðaðar bæði í hægri og vinstri hlið, aðrar myndir voru einvörðungu skoðaðar í hægra hlið. Tannþroski var ákvarðaður á öllum tönnum hjá báðum kynjum þegar þýðið leyfði, frá byrjun myndunar tannkrónu til loka myndunar rótar með lokun rótarenda. Cronbach’s Alpha áreiðanleikapróf var R = 0.982. Stúlkur á Íslandi ná tannþroskastigi rót fullmynduð (stig 10, Rc) 17.81 ára í efri gómi og 18.47 ára í neðri gómi. Drengir ná tannþroskastigi rót fullmynduð (stig 10, Rc) 18.00 ára í efri gómi og 17.63 ára í neðri gómi. Ekki var marktækur munur milli hægri og vinstri hliðar (r = 0.95–1.00) og ekki milli kynja, nema í byrjun myndunar rótar augntanna í efri og neðri gómi þar sem stúlkur náðu tannþroska fyrr en drengir. Áreiðanlegur gagnagrunnur hefur verið gerður fyrir tannþroska aldurbilsins 4–24 ár sem er sambærilegur við aðrar alþjóðegar rannsóknir. Þessar niðurstöður munu hjálpa réttartannlæknum og öðrum stéttum að áætla með mikilli nákvæmni bæði aldur og tannþroska ...