Iðjuþjálfun í ljósi gagnrýnna sjónarhorna. Umfjöllun um verk K. W. Hammell og gildi þeirra fyrir iðjuþjálfun á Íslandi.

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Iðjuþjálfun á Íslandi byggir á hugmyndum og vinnubrögðum sem hafa orðið til og eru almennt viðtekin í hinum vestræna...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Snæfríður Þóra Egilson, Guðrún Pálmadóttir
Other Authors: 1) Háskóla Íslands 2) Háskólanum á Akureyri
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Iðjuþjálfafélag Íslands 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/621423
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Iðjuþjálfun á Íslandi byggir á hugmyndum og vinnubrögðum sem hafa orðið til og eru almennt viðtekin í hinum vestræna heimi. Þrátt fyrir ólíkar aðstæður og menningarlegan margbreytileika hafa ýmsir fræðimenn talið eðlilegt að yfirfæra þessi sjónarmið og aðferðir yfir á meginhluta mannkyns. Kanadíska fræði konan Karen Whalley Hammell hefur hvatt til umræðu um fræðilegar undirstöður iðjuþjálfunar og iðjuvísinda. Skrif hennar einkennast af gagnrýnum sjónarhornum þar sem hún rýnir í og dregur í efa margt af því sem iðjuþjálfar hafa hingað til gengið að sem gefnu, sérstaklega áherslu fagsins á sjálfstæði og einstaklingshyggju frekar en gagnkvæmni og félagsleg sjónarhorn. Í þessari grein eru rakin skrif Hammell á árunum 2004-2018 og efni þeirra tengt skrifum annarra fræðimanna um svipað efni eftir því sem við á. Tekin eru fyrir þau málefni sem hún hefur einkum beint sjónum að, það er að segja flokkun og gildi iðju, skjólstæðingsmiðuð nálgun, menning ar leg auðmýkt, rétturinn til iðju og færni nálgunin. Umfjöllunin er tengd við ólíkar að stæður fólks, almenn mannréttindi og félagslega undirokun ákveðinna hópa. Þótt umfjöllun Hammell geti verið ögrandi þá lýsir hún líka trú á iðjuþjálfun sem fagi og þeim ólíku möguleikum sem í því búa. Gagnrýna umræðu má nýta á uppbyggilegan hátt og íslenskir iðjuþjálfar eru hér með hvattir til að beina sjónum sínum í auknum mæli að hinum ólíku aðstæðum og valkostum sem fólk býr við og hvernig þau hafa áhrif á og móta líf þess. Þá er mikilvægt að iðjuþjálfar hasli sér völl á fjölbreyttum starfsvettvangi og taki þátt í stefnumótandi aðgerðum sem stuðla að möguleikum fólks til að eiga hlutdeild í iðju sem gefur lífi þeirra merkingu og stuðlar að auknum lífsgæðum. Ör fjölgun og hækkandi menntunarstig iðjuþjálfa á Íslandi fela í sér tækifæri til aukinnar fjölbreytni í starfi. Occupational therapy in Iceland is ...