Notkun berskjöldunar meðal sálfræðinga á Íslandi fyrir börn með áráttu- og þráhyggjuröskun

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Áráttu- og þráhyggjuröskun (ÁÞR) einkennist af áráttuhegðun og þráhyggjuhugsunum. Þráhyggja lýsir sér í óþægilegum, u...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Aron Eydal Sigurðarson, Sindri Lárusson, Ástrós Elma Sigmarsdóttir, Hrafnkatla Agnarsdóttir, Guðmundur Skarphéðinsson
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Sálfræðingafélag Íslands 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/621414
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Áráttu- og þráhyggjuröskun (ÁÞR) einkennist af áráttuhegðun og þráhyggjuhugsunum. Þráhyggja lýsir sér í óþægilegum, uppáþrengjandi og óviðeigandi hugsunum sem valda vanlíðan og kvíða. Árátta fylgir yfirleitt þráhyggju og einkennist af endurteknum athöfnum sem virka sem markviss leið til þess að draga úr óþægindum sem þráhyggjuhugsanirnar valda. Hugræn atferlismeðferð með berskjöldun og svarhömlun er fyrsti kostur sem meðferð við ÁÞR. Þessi rannsókn gengur út á að kanna viðhorf sálfræðinga á Íslandi til berskjöldunar við ÁÞR og kanna hve mikið og hvernig þeir beita berskjöldunarmeðferðinni þegar þeir vinna með börnum og unglingum með ÁÞR. Stuðst var við erlendan spurningalista sem var þróaður til að athuga meðferðaraðferðir sálfræðinga við kvíða og ÁÞR. Spurningalistinn var þýddur yfir á íslensku og sendur sálfræðingum í Sálfræðingafélagi Íslands og einungis þeir sem höfðu meðhöndlað ÁÞR barns síðastliðið ár voru þátttakendur, alls 26. Rannsóknin leiddi í ljós að almennt er viðhorf sálfræðinga á Íslandi jákvætt til meðferðarinnar. Allir þátttakendur rannsóknarinnar sögðust nota berskjöldun í meðferð við ÁÞR og eyddu 46,2% þátttakenda meira en 61% tíma meðferðar í berskjöldun. Í ljós kom þó að ekki voru allir að nota bestu mögulegu aðferðir berskjöldunar í sinni meðferð en rúm 43% sögðust ekki reyna að takmarka truflanir í æfingum, það er að segja truflanir í umhverfinu sem gætu komið niður á árangri meðferðarinnar. Þetta gerir það að verkum að börnin eru ekki að fá bestu mögulegu meðferðina vegna mögulegra truflana. Því þyrfti að auka kennslu og þjálfun í notkun berskjöldunar svo að sálfræðingar beiti henni rétt til að börn með ÁÞR á Íslandi eigi mestan möguleika á bata. Obsessive-compulsive disorder (OCD) is characterized by 1) obsessional thoughts, images or impulses which appear as uncomfortable, intrusive and inappropriate and ...