Sjónsviðsskerðing við fyrstu hjáveituaðgerð (trabeculectomiu) vegna gláku

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download INNGANGUR Gláka er hrörnunarsjúkdómur í sjóntaug augans. Eina sannreynda meðferðin við gláku byggir á að lækka augnþr...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Elín Björk Tryggvadóttir, Sveinn Hákon Harðarson, María Soffía Gottfreðsdóttir
Other Authors: 1 Augndeild háskólasjúkrahússins á Skáni, Svíþjóð, 2 Háskóla Íslands, 3 augndeild Landspítala.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/621404
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download INNGANGUR Gláka er hrörnunarsjúkdómur í sjóntaug augans. Eina sannreynda meðferðin við gláku byggir á að lækka augnþrýsting og hægja þannig á hraða sjónsviðsskerðingar. Þegar lyfjameðferð dugir ekki eða gláka er langt gengin er skurðaðgerð beitt. Hjáveituaðgerð er algengasta skurðaðgerðin við gláku. Tilgangur þessarar rannsóknar er að meta alvarleika sjónsviðsskerðingar þegar sjúklingum er vísað í fyrstu hjáveituaðgerð en það hefur ekki verið rannsakað áður á Íslandi. AÐFERÐIR Afturskyggn rannsókn sem nær til allra sjúklinga með gleiðhornagláku sem undirgengust fyrstu hjáveituaðgerð á Íslandi í júní 2014 til mars 2016. Upplýsingar um 86 einstaklinga fengust úr sjúkraskrám. Alvarleiki glákuskemmda var metinn með mean defect (MD) tölugildi á sjónsviðsrannsókn og sjúklingar flokkaðir í þrjá hópa eftir því. NIÐURSTÖÐUR Meðalaldur var 75 ± 11 ár, 57% karlar. Sjúklingar notuðu að meðaltali 3,0 glákulyf við tilvísun í aðgerð og 64% sjúklinganna tóku þrjú lyf eða fleiri. Meðalgildi MD var 13,4 ± 7,7dB (bil: 0,8-26,2 dB), 21% augna höfðu milda sjónsviðsskerðingu (MD<6dB), 23% miðlungsalvarlega (MD 6-12 dB) og 56% alvarlega (MD >12). ÁLYKTUN Augu sem undirgengust hjáveituaðgerð á rannsóknartímabilinu höfðu allt frá mildri til alvarlegrar sjónsviðsskerðingar. Eins og klínískar leiðbeiningar mæla með, virðist meðferð gláku einstaklingsmiðuð og helsta ábending aðgerðar versnun á sjónsviði þrátt fyrir lyfjameðferð. Meðaltal sjónsviðsskerðingar reyndist hærra í okkar rannsókn en í erlendum samanburðarrannsóknum. Augu með alvarlega sjónsviðsskerðingu höfðu að meðaltali lægsta augnþrýstinginn og þynnstu hornhimnuna. Þetta getur bent til þess að mikil áhersla sé lögð á háan augnþrýsting sem ábendingu fyrir aðgerðarþörf en ef til vill of lítil áhersla á sjónsviðsskerðingu og þunna hornhimnu. Introduction: Glaucoma is a degenerative disease in the ...