Heilbrigði unglinga í framhaldsskólum: forprófun á klíníska skimunartækinu HEILUNG

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Tilgangur: unglingsárin eru tími mikilla breytinga og áhættuhegðun algeng. Tilgangur þessarar rannsóknar var að forpr...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Arna Garðarsdóttir, Brynja Örlygsdóttir, Guðný Bergþóra Tryggvadóttir, Sóley S. Bender
Other Authors: 1) Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins 2)3)4) Háskóla Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/621300
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Tilgangur: unglingsárin eru tími mikilla breytinga og áhættuhegðun algeng. Tilgangur þessarar rannsóknar var að forprófa nýtt klínískt skimunartæki sem nefnist hEiLung og ætlað er að meta heilbrigði unglinga í framhaldsskólum, bæði verndandi þætti og áhættuþætti/ áhættuhegðun og að skoða hagnýtt gildi þess. Aðferð: gerð var forprófun á hEiLung og tekin þrjú viðtöl við skólahjúkrunarfræðing um notkun tækisins. Skólahjúkrunarfræðingur í einum framhaldsskóla í reykjavík safnaði gögnum. Stuðst var við tilgangsúrtak og voru þátttakendur þeir nemendur sem leituðu til skólahjúkrunarfræðings til heilsueflingar vorið 2016. gerð var þáttagreining, fylgniútreikningar og tilgátuprófanir. Viðtöl við skólahjúkrunarfræðinginn voru skráð og greind eftir fyrirframákveðnum efnisþáttum. Niðurstöður: Þátttakendur voru 68 nemendur á aldrinum 15–20 ára; meðalaldur 17,9 ár, 76% voru stúlkur og 24% piltar. Þáttagreining leiddi í ljós tvo þætti: sjálfsmynd og sjálfstrú, en ekki reyndist unnt að þáttagreina áhættuþætti/áhættuhegðun. innra samræmi þáttagreiningarinnar reyndist vera yfir α=0,8 fyrir báða þættina. fylgni var á milli þáttanna sjálfsmyndar og sjálfstrúar en ekki á milli verndandi þátta og áhættuþátta/áhættuhegðunar. niðurstöður renna stoðum undir hugsmíðaréttmæti verndandi þátta. Viðtöl við skólahjúkrunarfræðing gáfu til kynna að skimunartækið væri auðvelt í notkun og að það gæfi heildrænni mynd af heilbrigði unglingsins en hefðbundin viðtöl. Ályktanir: forprófunin gefur góðar vísbendingar um áreiðanleika og hugsmíðaréttmæti skimunartækisins hvað varðar verndandi þætti en þörf er á því að prófa það áfram og leggja fyrir stærra úrtak til að skoða betur áhættuþætti og áhættuhegðun. Skimunartækið er auðvelt í notkun og gefur heildræna mynd af heilbrigði unglingsins. Aim: adolescence is a time of great change and frequent risk-taking. The purpose of ...