Fósturgreining og meðgöngusjúkdómar, undirsérgrein fæðingaog kvensjúkdómalækninga - Yfirlitsgrein

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Læknisfræði fósturs er undirsérgrein fæðinga- og kvensjúkdómalækninga og lýtur að rannsóknum á þróun, vexti og sjúkdó...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Harðardóttir
Other Authors: Kvennadeild Landspítala og læknadeild Háskóla Íslands.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/621276
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Læknisfræði fósturs er undirsérgrein fæðinga- og kvensjúkdómalækninga og lýtur að rannsóknum á þróun, vexti og sjúkdómum fóstra. Það má telja eðlilegt að hafa eina sérgrein fyrir þá órjúfanlegu heild sem móðir og fóstur mynda og er íslenska undirsérgreinin í samræmi við það og ber heitið fósturgreining og meðgöngusjúkdómar (FM). Stórstígar framfarir hafa átt sér stað í FM hvað varðar myndgreiningu fóstra með ómskoðun og segulómun. Einnig á sviði erfða- og sameindalæknisfræði við sjúkdómsgreiningar með kjarnsýrutækni auk þess sem aðgerðir á fóstrum eru nú mögulegar í vissum tilfellum. Í vinnu við fósturgreiningar er samstarf við fjölmarga aðra sérfræðinga mikilvægt, til dæmis nýburalækna, barnalækna í ýmsum undirsérgreinum, barnaskurðlækna, erfðalækna og lækna sem vinna á sviði myndgreiningar. Í stærri samfélögum starfa FM-læknar gjarnan sem ráðgefandi fyrir fæðingalækna og aðra sérgreinalækna auk þess að vinna við fósturskimanir, greiningar og meðferð. Hér á landi er sérhæfing styttra á veg komin. Hér eru tekin dæmi um verkefni FM-lækna og lýst hvernig tækniframfarir hafa breytt fósturskimun fyrir litningafrávikum, eftirliti og meðferð við rhesus-varnir auk aðgerða á fósturskeiði. Þá er sagt frá samstarfi norrænna FM-lækna. Fetal medicine is a subspecialty of obstetrics investigating the development, growth and disease of the human fetus. Often, the mother is part of the definition of the subspecialty where maternal diseases specific to pregnancy are included and therefore named MaternalFetal Medicine (MFM). It is appropriate to have one subspecialty for the maternal-fetal unit and the Icelandic subspecialty is named accordingly; “Prenatal diagnosis and maternal diseases”. The subspecialty was acknowledged in Iceland in 2015 when physician specialty regulations were changed. The advances in fetal imaging, both ultrasonography and ...