Áhrif hjartaendurhæfingar á líkamlega afkastagetu einstaklinga með hjartabilun

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download TILGANGUR Takmarkaðar upplýsingar er að finna um árangur hjartaendurhæfingar fyrir hjartabilaða einstaklinga á Ísland...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Kristín Elísabet Hólmgeirsdóttir, Brynjólfur Gauti Jónsson, Thor Aspelund, Gunnar Guðmundsson, Janus Guðlaugsson
Other Authors: 1) HL-stöðin í Reykjavík, 2) Endurhæfingardeild Landspítala, 3) Tölfræðiráðgjöf heilbrigðisvísindasviðs, 4) Læknadeild Háskóla Íslands, 5 Janus heilsuefling
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/621173
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download TILGANGUR Takmarkaðar upplýsingar er að finna um árangur hjartaendurhæfingar fyrir hjartabilaða einstaklinga á Íslandi. Markmið þessarar rannsóknar var að greina hvort hjartaendurhæfing (stig ll) á HL-stöðinni í Reykjavík skilaði aukinni líkamlegri afkastagetu (w/kg) á hámarksþolprófi í lok þjálfunartímabils. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Þetta er afturskyggn gagnarannsókn frá janúar 2010 til júní 2018. Þátttakendur voru sjúklingar með hjartabilun og einnig sjúklingar með útstreymisbrot hjarta 45% eða minna. Aldur og aðrar sjúkdómsgreiningar takmörkuðu ekki þátttöku. Upplýsingar um útstreymisbrot hjarta og þolpróf við upphaf og lok þjálfunartímabils þurftu að vera skráðar. Hlutfallsleg breyting á þolprófunum var metin með almennum línulegum líkönum fyrir endurteknar mælingar. Á rannsóknartímabili voru skráðir 112 þátttakendur, 27 luku ekki þjálfunartímabili og 9 voru með ófullnægjandi gögn. Greind voru gögn 76 þátttakenda á aldrinum 36-83 ára. NIÐURSTÖÐUR Líkamleg afkastageta þátttakenda jókst að meðaltali um 16% (p<0,001; öryggisbil 13-18%). Þeir sem mættu í þjálfun að jafnaði oftar en tvisvar í viku bættu líkamlega afkastagetu sína um 18% sem er marktækt meira en þeir sem mættu tvisvar sinnum eða sjaldnar en þeir bættu sig um 6%. Eldri aldurshópurinn (65-83) bætti sig um 19% sem er marktækt meira en yngri aldurshópinn (36-64) sem bætti sig um 12%. Ekki reyndist marktækur munur á bætingu eftir því hvort útstreymisbrot hjarta var undir 40% eða 40% og hærra. ÁLYKTANIR Markviss hjartaendurhæfing fyrir einstaklinga með hjartabilun og einstaklinga með skert útstreymisbrot hjarta skilar sér í aukinni líkamlegri afkastagetu í lok æfingatímabils Purpose: Limited information is available on the effects of cardiac rehabilitation (CR) on individuals with heart failure (HF) in Iceland. The aim of this study was to analyze whether CR yielded ...