„Ég virðist alltaf falla á tíma“: Reynsla nemenda sem glíma við námsvanda í Háskóla íslands

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Háskólar þurfa að bregðast við aukinni fjölbreytni í hópi nemenda með því að mæta ólíkum þörfum þeirra. Í greininni e...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigrún Harðardóttir, Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir
Other Authors: 1 Univ Iceland, Sch Social Sci, Social Work, Reykjavik, Iceland Show more 2 Univ Iceland, Reykjavik, Iceland Show less 3 Natl Univ Hosp Iceland, Psychiat Dept, Reykjavik, Iceland Organization-Enhanced Name(s) Landspitali National University Hospital
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Háskóli Íslands 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620804
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Háskólar þurfa að bregðast við aukinni fjölbreytni í hópi nemenda með því að mæta ólíkum þörfum þeirra. Í greininni eru kynntar niðurstöður rannsóknar á upplifun og reynslu nemenda sem stunda nám við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu nemenda sem glíma við námsvanda. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvað styður og hvað hindrar nemendur í HÍ sem glíma við námsvanda í að takast á við nám sitt? Tekin voru þrjú einstaklingsviðtöl og rýnihópsviðtal við sex nemendur í BA-námi við félagsráðgjafardeild. Niðurstöður sýna að viðmælendur voru ánægðir með ýmsa þætti í skipulagi námsins og fannst skilningur kennara á stöðu þeirra vera góður en töldu þó að í kennsluháttum væru ýmsar hindranir sem gerðu þeim erfitt fyrir. Þær hindranir felist meðal annars í erfiðleikum við aðlögun að háskólasamfélaginu, álagi í námi sem veldur streitu og kvíða og því að of lítið tillit sé tekið til námsvanda þeirra. Slík innsýn í viðhorf nemenda sem glíma við námsvanda getur gagnast kennurum við að taka tillit til fjölbreytileikans í nemendahópnum og stuðlað þannig að bættri sálfélagslegri líðan nemenda, sem aftur hjálpar þeim við námið. Auk þess sýna niðurstöður að aukin áhersla á kennslu í fræðilegum vinnubrögðum ásamt virkri endurgjöf í námi getur hjálpað nemendum með námsvanda. Kennslumálasjóður Háskóla Íslands