Langtímahorfur sjúklinga með bráða kransæðastíflu

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Inngangur: Hratt lækkandi dánartíðni vegna kransæðasjúkdóma á Íslandi helst í hendur við samsvarandi lækkandi nýgengi...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Einar Logi Snorrason, Bergrós Kristín Jóhannesdóttir, Thor Aspelund, Vilmundur Guðnason, Karl Andersen
Other Authors: 1 Læknadeild Háskóla Íslands, 2 Haukeland Universitetssjukehus, Bergen, 3 Hjartavernd, 4 hjartadeild 14EG Landspítala
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620751
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download Inngangur: Hratt lækkandi dánartíðni vegna kransæðasjúkdóma á Íslandi helst í hendur við samsvarandi lækkandi nýgengi kransæðastíflu á undanförnum þremur áratugum. Markmið þessarrar rannsóknar var að bera saman langtímalifun einstaklinga með NSTEMI (Non-ST elevation myocardial infarction) og STEMI (ST elevation myocardial infarction) og kanna áhrif áhættuþátta á lifun. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin náði til allra sjúklinga sem greindust með bráða kransæðastíflu á Landspítala árið 2006. Upplýsingar um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma og greiningar voru fengnar úr Sögukerfi spítalans. Sjúklingum var fylgt eftir fram til 1. janúar 2015. Endapunktur rannsóknarinnar var andlát af hvaða orsök sem er. Samsettur endapunktur var dauðsfall eða endurinnlögn vegna kransæðastíflu. Niðurstöður: Á árinu 2006 greindust 447 einstaklingar með bráða kransæðastíflu á Landspítala, þar af voru 280 með NSTEMI (I21.4) og 167 með STEMI (I21 - I21.9). Nýgengi NSTEMI árið 2006 var 91,3 á hverja 100.000 íbúa. Nýgengi STEMI árið 2006 var 55,9 á hverja 100.000 íbúa. Meðalaldur NSTEMI-sjúklinga var 73,0 ár. Konur með NSTEMI voru að meðaltali 8,4 árum eldri en karlar með NSTEMI (konur 78,3 ár og karlar 69,9 ár). Meðalaldur STEMI-sjúklinga var 65,3 ár. Konur með STEMI voru að meðaltali 7,3 árum eldri en karlar með STEMI (konur 70,4 ár og karlar 63 ár). Fimm ára lifun NSTEMI-sjúklinga var 51%, 42% meðal kvenna og 57% meðal karla. Fimm ára lifun STEMI sjúklinga var 77%, 68% meðal kvenna og 80% meðal karla (logrank: p<0,01). Eftir aldursleiðréttingu var marktækt verri langtímalifun eftir NSTEMI samanborið við STEMI. Ályktanir: Nýgengi NSTEMI var hærra en STEMI á Íslandi árið 2006. Konur höfðu verri langtímahorfur en karlar, sem skýrist af hærri meðal­aldri þeirra. Langtímalifun NSTEMI-sjúklinga var verri en lifun STEMI sjúklinga þrátt fyrir aldursleiðréttingu. ...