Evrópufaraldur lifrarbólgu A á Íslandi árið 2017. Algengar breytingar í gallblöðru á myndgreiningu

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files TILGANGUR Lifrarbólga A er afar sjaldgæf á Íslandi og hefur greinst um eitt tilfelli á ári undanfarin 20 ár. Frá árinu 2...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Sif Ormarsdóttir, Páll Möller, Alma Óskarsdóttir, Pétur Hannesson, Arthur Löve, Haraldur Briem
Other Authors: 1 Landspítali, 2 læknadeild Háskóla Íslands, 3 Embætti landlæknis
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620608
https://doi.org/10.17992/lbl.2018.06.188
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files TILGANGUR Lifrarbólga A er afar sjaldgæf á Íslandi og hefur greinst um eitt tilfelli á ári undanfarin 20 ár. Frá árinu 2016 hefur verið greint frá faraldri í Evrópu meðal karla sem hafa haft mök við karla. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hugsanleg tengsl tilfella af lifrarbólgu A á Íslandi árið 2017 við þennan faraldur. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Farið var afturskyggnt yfir gögn allra sjúklinga sem greindust með lifrarbólgu A á Íslandi árið 2017. NIÐURSTÖÐUR Af 5 sjúklingum sem greindust árið 2017 voru fjórir karlar og ein kona. Þrjú tilfelli greindust á innan við viku sumarið 2017. Sjúklingarnir voru á aldrinum 25 til 39 ára. Hjá karlkyns sjúklingum var smitleið talin vera gegnum mök við karlmenn frá meginlandi Evrópu. Allir sjúklingarnir voru með klíníska mynd lifrarfrumuskaða og í þremur af tilfellunum voru merki um væga lifrarbilun. Sjúklingarnir voru allir jákvæðir fyrir lifrarbólgu A mótefnum. Aðrar orsakir lifrarbólgu voru útilokaðar með viðeigandi prófum. Myndgreiningar vöktu grun um gallblöðrubólgu hjá fjórum af 5 sjúklingum og fór einn þeirra síðar í gallblöðrutöku sem valaðgerð. ÁLYKTUN Faraldur lifrarbólgu A í Evrópu meðal karla sem áttu mök við karla náði til Íslands sumarið 2017. Mikilvægt er að áhættuhópar láti bólusetja sig gegn veirunni. Breytingar í gallblöðru á myndgreiningu, svo sem þykknun á gallblöðruvegg án steina, eru algengar við bráða lifrarbólgu A. Nauðsynlegt er að gera greinarmun á þessum breytingum og bráðri steinalausri gallblöðrubólgu sem getur haft alvarlega fylgikvilla í för með sér. Senda grein,Prenta greinEnglishFacebookTwitter Aim The incidence of hepatitis A (HAV) in Iceland is low with about one case per year in the last decades. Since 2016, there has been an ongoing outbreak of HAV in men who have sex with men (MSM). The aim of this study was to inves­tigate whether cases diagnosed in Iceland ...