Hreyfing og svefn reykvískra ungmenna

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Inngangur: Hreyfing og svefn eru mikilvægir áhrifaþættir heilsufars. Alþjóðlegar ráðleggingar mæla með því að börn og un...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Vaka Rögnvaldsdóttir, Berglind M. Valdimarsdóttir, Brychta, Robert J., Soffía M Hrafnkelsdóttir, Sigurbjörn Á. Arngrímsson, Erlingur Jóhannsson, Chen, Kong Y., Sigríður L. Guðmundsdóttir
Other Authors: 1 Rannsóknastofu í íþrótta- og heilsufræði, menntavísindasviði Háskóla Íslands, 2 NIH, Heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna, 3 deild Íþrótta og hreyfingar, Háskóli hagnýtra vísinda í Vestur-Noregi, Bergen
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620476
https://doi.org/10.17992/lbl.2018.02.173
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Inngangur: Hreyfing og svefn eru mikilvægir áhrifaþættir heilsufars. Alþjóðlegar ráðleggingar mæla með því að börn og unglingar hreyfi sig að lágmarki 60 mínútur daglega af miðlungs eða mikilli ákefð og sofi í 8 til 10 klukkustundir á sólarhring. Tengsl hreyfingar og svefns meðal ungmenna eru ekki vel þekkt. Markmið rannsóknarinnar voru að meta: a) hversu hátt hlutfall 16 ára reykvískra ungmenna uppfyllir viðmið um hreyfingu og svefn, b) hvort tengsl séu milli hreyfingar og svefns og c) kynjamun á hreyfingu og svefni. Efniviður og aðferðir: Alls var 411 nemendum 10. bekkjar 6 grunnskóla í Reykjavík boðin þátttaka í rannsókninni vorið 2015. Gild gögn fengust frá 106 drengjum og 160 stúlkum. Hlutlægar og huglægar mælingar á hreyfingu og svefni voru gerðar með hröðunarmælum og spurningalistum. Niðurstöður: Um helmingur þátttakenda náði viðmiðum um hreyfingu samkvæmt niðurstöðum spurningalista. Þrátt fyrir að 51,9% teldu sig sofa nógu mikið náðu þó einungis 22,9% viðmiðum um ráðlagða svefnlengd samkvæmt hröðunarmælum. Engin tengsl fundust milli svefnlengdar og hreyfingar samkvæmt spurningalistum. Stúlkur hreyfðu sig marktækt meira en drengir á frídögum (p<0,01) samkvæmt hröðunarmælum en ekki var marktækur munur á meðaltali hreyfingar stúlkna og drengja yfir vikuna. Hvorki var marktækur kynjamunur á svefnlengd mældri með hröðunarmælum né spurningalista. Ályktun: Lífsstíll íslenskra ungmenna virðist ekki endurspegla viðmið opinberra aðila um daglega hreyfingu og svefn. Einungis 22,9% náðu viðmiðum um ráðlagðan svefntíma, og 11,3% uppfylltu bæði viðmið um hreyfingu og svefn. Introduction: Physical activity and sleep are major determinants of overall health. According to international recommendations, adolescents should engage in moderate to vigorous physical activity for at least 60 min each day and sleep eight to ten hours each night. The ...