Byltur sjúklinga á Landspítala 2005-2009: einkenni og afleiðingar

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink at the top of the page marked Files Byltur eru algengar á bráðasjúkrahúsum og geta haft langvarandi áhrif á líf og líðan sjúklinga. Orsakir byltna geta verið aldur, lyf, bráðaóráð, skert jafnvægi, þvagleki og...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Eygló Ingadóttir, Hlíf Guðmundsdóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620425
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink at the top of the page marked Files Byltur eru algengar á bráðasjúkrahúsum og geta haft langvarandi áhrif á líf og líðan sjúklinga. Orsakir byltna geta verið aldur, lyf, bráðaóráð, skert jafnvægi, þvagleki og margt fleira. Tilgangur þessarar lýsandi þversniðsrannsóknar var að greina tíðni byltna á Landspítala og hvað einkennir þá sjúklinga sem detta og skoða tengsl milli einkenna sjúklinga og afleiðinga byltna. Skoðuð voru 2382 byltuatvik hjá 1761 sjúklingi. Megindlegar og eigindlegar aðferðir voru notaðar til að greina gögn úr atvikaskráningakerfi Landspítalans. Skráðum blyltum sjúklinga á Landspítala fjölgaði á tímabilinu, úr 1,3 byltum upp í 3,2 byltur á hverja 1000 legudaga. Meðalaldur sjúklinga sem duttu, var 77,2 ár. Tíðni byltna jókst með aldri og karlar voru líklegri til að detta en konur (p=0,001). Áhugavert var að 42% byltna sjúklinga urðu að næturlagi. Sjúklingar yngri en 85 ára og áttaðir sjúklingar voru líklegri til að fá áverka við byltu hendur en aðrir. Byltur tengdar salernisferðum voru 35,3% og voru líklegri til að valda sjúklingi áverka heldur en byltur sjúklinga við aðrar athafnir. Niðurstöður sýna að skráning á byltum á Landspítala hefur aukist og er það hugsanlega til marks um aukna vitund heilbrigðisstarsfólks um vandamálið. Mikilvægt er að skipuleggja aðgerðir til að fækka byltum aldraðra sjúklinga sem og byltum sjúklinga að næturlagi. Einnig er mikilvægt að huga að forvörnum vegna byltna sem tengjast salernisferðum sjúklinga. Patient falls are common in acute hospitals and can have long-lasting consequences for patients' wellbeing and quality of life. Falls have many causes, like age, use of sedative drugs, confusion, unsteady gait and incontinence. The purpose of this descriptive cross-sectional study was to analyze the incidence of falls in Landspitali University Hospital of Iceland (LUH), analyze the characteristics of patients who fall, and examine the relationship between patient ...