Efnisval við smíði tannplantastuddra tanngerva á Íslandi og vandamál tannsmiða við gerð þeirra

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða efni eru oftast notuð við gerð tannplantafastra og tannplantastuddra tanngerva á Íslandi út frá sjónarhorni tannsmiða og hindranir og vandamál sem tannsmiðir hé...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Rakel Ásta Sigurbergsdóttir, Ellen Flosadóttir
Other Authors: Tannlæknadeild HÍ
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Tannlæknafélag Íslands 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620404
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða efni eru oftast notuð við gerð tannplantafastra og tannplantastuddra tanngerva á Íslandi út frá sjónarhorni tannsmiða og hindranir og vandamál sem tannsmiðir hér á landi þurfa að takast á við. Undirmarkmið var að kanna mögulegar lausnir við þeim vandamálum. Efniviður og aðferðir: Megindleg aðferðafræði var notuð og rafrænn spurningalisti sem innihélt tuttugu spurningar send félögum í Tannsmiðafélagi Íslands. Forritið SurveyMonkey var notað til að halda utan um könnunina og Microsoft Excel við gagnaúrvinnslu. Lýsandi tölfræði var notuð í útreikningum og túlkun niðurstaðna. Niðurstöður: Svarhlutfall var 32,5% (n = 27), 25,9% karlar (n = 7) og 74,1% konur (n = 20). Flestir þátttakendur voru á aldrinum 40 - 49 ára (40,7%, n = 11). Algengasti starfsaldur þátttakenda var 30 ár eða lengri (22,2%, n = 6). Meirihluti þátttakenda var sjálfstætt starfandi (60,9%, n = 14). Óalgengt var að tannsmiðir fengju beiðni um gerð stýriskinnu frá tannlækni. Algengast var að tannsmiðir og tannlæknar tækju ákvarðanir í sameiningu varðandi hönnun á krónu- eða brúarsmíði og við hönnun ásetugóma á tannplanta. Algengara var að krónur og tannplantabrýr væru skrúfaðar en límdar. Algengast var að nota CAD/CAM titanium stoðliði. Zirconium var mest notaða efnið við gerð á krónum og brúm bæði á framtanna- og jaxlasvæði. Locator kerfið var algengasta festingakerfið fyrir ásetugóma á tannplanta (85,7%, n = 18). Allir þátttakendur nema þrír höfðu glímt við vandamál við hönnun króna og brúa á tannplanta. Helsta vandamálið var óæskileg staðsetning eða afstaða tannplanta í tannboganum. Óalgengt var að postulínskrónur og brýr kæmu til viðgerðar vegna þess að kvarnast hefði úr postulíni. Þörf er á betri skipulagningu verkefna og aukinni notkun stýriskinna. Ályktun: Mikilvægt er að bæta skipulagningu til að ná bestu mögulegu útkomu fyrir sjúklinga Objective: The purpose of this study was to examine the current ...