Glerungseyðing hjá sundíþróttafólki

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Tilgangur: Markmið þessarar rannsóknar var að meta algengi glerungseyðingar hjá sundíþróttafólki 18 ára og eldra á höfuðborgarsvæðinu. Efniviður og aðferðir: Framkvæmd var samanburðarrannsókn sem samanstóð af 38 þá...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hjalti Harðarson, Hjalti Þórðarson, Jón Ingvar Jónsson, Inga B. Árnadóttir, Vilhelm Grétar Ólafsson
Other Authors: Tannlæknadeild HÍ
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Tannlæknafélag Íslands 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620403
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Tilgangur: Markmið þessarar rannsóknar var að meta algengi glerungseyðingar hjá sundíþróttafólki 18 ára og eldra á höfuðborgarsvæðinu. Efniviður og aðferðir: Framkvæmd var samanburðarrannsókn sem samanstóð af 38 þátttakendum í tveimur hópum, tilraunahópi (sundíþróttafólk, N=20) og samanburðarhópi (nemar sem ekki æfa sund, N=18). Glerungseyðing var metin með BEWE index. Allir þátttakendur svöruðu spurningalista varðandi matarvenjur með sérstöku tilliti til neyslu súrra drykkja. Niðurstöður: Enginn marktækur tölfræðilegur munur fannst á milli samanburðarhóps og tilraunahóps þegar meðaltöl BEWE index hópanna voru skoðuð og borin saman. Framtennur í efri- og neðri gómi voru einu svæðin sem sýndu marktækan mun milli hópa, þar sem tilraunahópur sýndi meiri glerungseyðingu fyrir bæði efri og neðri góms framtennur. Samanburðarhópur sýndi hærra meðaltalsgildi á öllum jaxlasvæðum samanborið við tilraunahóp en munurinn var ekki tölfræðilega marktækur. Enginn munur var á milli hópa í neyslu á súrum drykkjum. Ályktun: Niðurstöður benda til aukinnar glerungseyðingar á framtönnum sundíþróttafólks. Fræðslu er þörf fyrir þessa einstaklinga, bæði á vegum íþróttafélaga og tannlækna sem geta bent á fyrirbyggjandi aðferðir til að draga úr hættu á glerungseyðingu tanna. Introduction: Research has shown that dental erosion in competitive swimmers is common. The process of dental erosion can be rapid if the chlorine content of swimming pools is poorly controlled. The aim of this study was to evaluate the prevalence of dental erosion in competitive swimmers 18 years and older in the capital area of Iceland. Materials and methods: A comparative study was made consisting of 38 participants in two groups, a test group (competitive swimmers, N=20) and a control group (college students who were not competitive swimmers, N=18). Dental erosion was evaluated with the BEWE index. All participants answered a questionnaire regarding food habits with a special ...