Ólögmæt dreifing örvandi lyfseðilsskyldra lyfja meðal unglinga í 10. bekk

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Inngangur: Athyglisbrestur og ofvirkni (ADHD) er taugaþroskaröskun sem kemur yfirleitt fram fyrir 7 ára aldur. Örvandi l...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Gísli Kristófersson, Ársæll Arnarsson, Guðmundur Heimisson, Dagbjörg Sigurðardóttir
Other Authors: 1)Háskólanum á Akureyri 2)Háskóla Íslands 3)Hug- og felagsvísindasviði Háskólans á Akureyri 4)Landspítala
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620399
https://doi.org/10.17992/lbl.2017.12.164
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Inngangur: Athyglisbrestur og ofvirkni (ADHD) er taugaþroskaröskun sem kemur yfirleitt fram fyrir 7 ára aldur. Örvandi lyf eru mikið notuð til meðhöndlunar á þessum kvilla hér á landi, en fela í sér hættu á ávanabindingu, misnotkun og lyfjaflakki, það er að þau séu notuð af öðrum einstaklingi en þeim sem læknir skrifaði lyfseðil fyrir. Þessari rannsókn var ætlað að svara því hversu algengt slíkt lyfjaflakk væri meðal unglinga á Íslandi. Efniviður og aðferðir: Hér er byggt á gögnum sem safnað var í íslenskum hluta ESPAD-rannsóknarinnar (European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs) um vímuefnaneyslu 10. bekkinga. Niðurstöður: Af 2306 nemendum sem tóku þátt í könnunni sögðust 91% (2098) aldrei hafa fengið slík lyf uppáskrifuð en 9% (208) sögðu svo vera. Strákar voru rúmlega helmingi líklegri til að hafa fengið örvandi lyf uppáskrifuð en stúlkur. Tæplega 18% unglinganna í könnuninni kvaðst hafa dreift lyfjunum sínum til annarra með einhverjum hætti. Þeir unglingar eru einnig margfalt líklegri til að sýna af sér annars konar áhættuhegðun. Umræða: Lyfjaflakk örvandi lyfja á meðal 10. bekkinga á Íslandi er algengt miðað við erlendar rannsóknir þar sem hlutfallið er nær 5-10%. Á sama tíma sýna niðurstöðurnar fram á mikilvægi þess að vandað sé til verka hvað varðar aðbúnað og umgjörð slíkar notkunar því til mikils er að vinna, bæði fyrir barnið sjálft og þá sem komast á ólöglegan hátt yfir lyfin og neyta þeirra. Introduction: ADHD is a neurodevelopmental disorder that usually surfaces before seven years of age. Stimulants are commonly used medications for the treatment of this disorder in Iceland, but they carry with them a significant risk of both abuse and diversion – i.e. when it is used by an individual other than it was prescribed for by a physician. The purpose of this study was to estimate the prevalence of diversion amongst ...