Árangur brottnáms á endaþarmi vegna krabbameins eða forstiga þess á Landspítala 2008-2012

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Inngangur: Endaþarmskrabbamein eru um 2-3% allra krabbameina á Íslandi og eru aðgerðir á endaþarmi hornsteinn í meðferð...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Hörður Már Kolbeinsson, Elsa Björk Valsdóttir, Páll Helgi Möller
Other Authors: 1)Skurðlækningadeild Landspítala 2)3)Skurðlækningadeild Landspítala‚ læknadeild Háskóla Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620398
https://doi.org/10.17992/lbl.2017.12.163
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Inngangur: Endaþarmskrabbamein eru um 2-3% allra krabbameina á Íslandi og eru aðgerðir á endaþarmi hornsteinn í meðferð þeirra. Upplýsingar um þá sem fara í brottnám á endaþarmi vegna krabbameins eða forstiga þess á Íslandi í dag eru takmarkaðar. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna árangur aðgerða á endaþarmi vegna krabbameins eða forstiga þess á 5 ára tímabili. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn. Gerð var leit í skráningarkerfi aðgerða á Landspítala að öllum sem fóru í brottnám eða hlutabrottnám vegna endaþarmskrabbameins eða forstiga þess á árunum 2008-2012. Gagna var aflað um aldur, kyn, aðgerðir, aðra krabbameinsmeðferð en skurðaðgerð, þörf á enduraðgerð og lifun sjúklinga. Niðurstöður: Heildarfjöldi sjúklinga sem fóru í aðgerð á tímabilinu var 144. Meðalaldur sjúklinga var 66 ár (bil: 33-89). Fjöldi sem fékk meðferð með geislum og/eða lyfjum fyrir aðgerð var 65 (45%). Flestir, eða 65%, fóru í fremra brottnám, 21% í gagngert brottnám, 11% í Hartmanns-­aðgerð og 3% fóru í annars konar aðgerðir. Meirihluti sjúklinga (88%) reyndist vera með krabbamein og 12% með forstig krabbameins. Samtenging var gerð í 67% tilfella og varanlegt stóma lagt út í 33% tilfella. Framkvæma þurfti enduraðgerð innan 30 daga í 12% tilfella. Dánarhlutfall eftir 30 daga og eitt ár var 0,7% og 6,2%. Meðaleftirfylgni var 56 mánuðir (bil: 1-98). Staðbundin endurkoma meins varð í 7,1% tilfella og 5 ára lifun var 77%. Ályktun: Tegundir aðgerða á Landspítala eru svipaðar og þekkist erlendis. Árangur skurðaðgerða á endaþarmi vegna krabbameina eða forstiga þess á Landspítala virðist sambærilegur við það sem best gerist erlendis. Backround: Rectal cancer makes up 2-3% of all cancers in Iceland and surgery is the mainstay of its treatment. Information regarding those who undergo resection of the rectum because of rectal cancer or its precursors in ...