Lyfjafræðileg umsjá í Heilsugæslunni í Garðabæ - greining á fjölda og eðli lyfjatengdra vandamála eldri einstaklinga

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Tilgangur: Öldruðum á Íslandi fer sífellt fjölgandi. Með hækkandi aldri aukast líkur á lyfjanotkun og þar með lyfjatengd...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Anna Bryndís Blöndal, Anna Birna Almarsdóttir, Jón Steinar Jónsson, Sveinbjörn Gizurarson
Other Authors: 1 Skurðlækningadeild Landspítala, 2 læknadeild Háskóla Íslands, 3 rannsóknarstofu í meinafræð
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620342
https://doi.org/10.17992/lbl.2017.11.159
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Tilgangur: Öldruðum á Íslandi fer sífellt fjölgandi. Með hækkandi aldri aukast líkur á lyfjanotkun og þar með lyfjatengdum vandamálum. Lyfjafræðileg umsjá hefur verið að festast í sessi erlendis þar sem lyfjafræðingur starfar með öðru heilbrigðisstarfsfólki við að draga úr lyfjatengdum vandamálum einstaklinga. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna fjölda og eðli lyfjatengdra vandamála hjá eldri einstaklingum í heilsugæslunni í Garðabæ, með aðferðum lyfjafræðilegrar umsjár í samvinnu við heimilislækna. Efniviður og aðferðir: Fimm heimilislæknar völdu sjúklinga, 65 ára og eldri, og vísuðu þeim til lyfjafræðings. Lyfjafræðingur veitti lyfjafræðilega umsjá eftir vel skilgreindri aðferð. Niðurstöður: Samtals 100 sjúklingar tóku þátt í rannsókninni, 44 karlar og 56 konur. Lyfjafræðingur gerði að meðaltali tvær athugasemdir um lyfjatengd vandamál. Algengasta lyfjatengda vandamálið var lág meðferðarheldni (30,1%), næst algengasta var aukaverkun (26,7%) og þriðja algengasta var óþörf lyfjameðferð (18,2%). Flestallar athugasemdirnar voru teknar til greina af læknunum (90,3%). Ályktun: Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að lyfjafræðingur sem veitir lyfjafræðilega umsjá gerir að jafnaði tvær athugasemdir við lyfjameðferð hvers sjúklings og í yfirgnæfandi meirihluta tilvika taka heimilislæknar þær til greina. Introduction: Elderly people are a rising population in Iceland. With higher age the likelihood of drug consumption increases and thus drug therapy problems. Pharmaceutical care has been established abroad, where the pharmacist works in collaboration with other healthcare professionals to reduce patients' drug therapy problems. The aim of this research was to study the number and types of drug therapy problems of older individuals in primary care in Garðabær, by providing pharmacist-led pharmaceutical care in collaboration with general ...