Úr gögnum Hjartaverndar: Nokkur atriði um faraldsfræði og áhættumat beinbrota á Íslandi

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Á síðustu árum hafa birst nokkrar greinar í vísindatímaritinu Osteoporosis International um faraldsfræði beinbrota á Ísl...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Gunnar Sigurðsson, Kristín Siggeirsdóttir, Brynjólfur Y. Jónsson, Brynjólfur Mogenssen, Elías F. Guðmundsson, Thor Aspelund, Vilmundur Guðnason
Other Authors: 1 Hjartavernd, 2 Janus endurhæfing, 3 Lækning 4 Landspítali 5 Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620319
https://doi.org/10.17992/lbl.2017.10.154
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Á síðustu árum hafa birst nokkrar greinar í vísindatímaritinu Osteoporosis International um faraldsfræði beinbrota á Íslandi, byggðar á hóprannsóknum Hjartaverndar. Við höfum tekið saman nokkur atriði úr þessum vísindagreinum og fylgiskjölum þeirra með áherslu á meiriháttar beinþynningarbrot (framhandleggsbrot, upphandleggsbrot, hryggsúlubrot og mjaðmarbrot). Þessi fjögur brot eru talin valda um 90% af heildarbyrði allra beinþynningarbrota. Nýgengistölur þessara beinbrota í Hjartaverndarhópnum mynda grunn að notkun alþjóðlegs áhættureiknis, FRAX Ísland, fyrir Íslendinga 40-90 ára og spá fyrir um líkur á meiriháttar beinbroti næstu 10 árin. Þessi áhættureiknir var opnaður á veraldarvefnum árið 2013. Sérstaklega bendum við á mikilvægi fyrri beinbrotasögu þar sem tæp 40% allra meiriháttar beinþynningarbrota verða í kjölfar fyrsta brots síðar á ævinni samkvæmt gögnum Hjartaverndar. Niðurstöðurnar benda á mikilvægi tímalengdar frá broti þar sem mesta áhættan á að fá síðar brot er á fyrstu tveimur árunum eftir brot enda þótt aukin áhætta haldist næstu 20 árin. Þetta bendir því til mikilvægis forvarna strax eftir fyrsta beinbrot, sérstaklega meðal aldraðra. Rannsóknirnar gefa góða heildarsýn yfir beinbrot á Íslandi í samanburði við erlendar rannsóknir og sýna að aldursstaðlað nýgengi alvarlegustu brotanna, mjaðmarbrotanna, náði hámarki um aldamótin en lækkaði til 2008 meðal kvenna, svipað og lýst hefur verið í Svíþjóð og Danmörku. In recent years, scientific papers have been published in Osteoporosis International on the epidemiology of fractures in Iceland based on the Icelandic Heart Association cohort. We report the main results with emphasis on the major osteoporotic fractures (MOF), distal forearm, upper arm, clinical vertebral and hip. Those four types of fractures have been reported to cause about 90% of the total burden of all ...