Framskyggn rannsókn á eitrunum sem komu til meðferðar á bráðamóttökum Landspítala 2012

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Inngangur: Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar á eitrunum á Íslandi frá 2001-2002 leita flestir sem þarfnast meðferðar vegna...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Guðborg Auður Guðjónsdóttir, Anna María Þórðardóttir, Jakob Kristinsson
Other Authors: Bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi. 1 Háskóla Íslands, 2 gæða- og sýkingavarnadeild Landspítala.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620260
https://doi.org/10.17992/lbl.2017.06.140
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files Inngangur: Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar á eitrunum á Íslandi frá 2001-2002 leita flestir sem þarfnast meðferðar vegna eitrunar á bráðamóttökur Landspítala. Markmið rannsóknarinnar var að afla áreiðanlegra upplýsinga um bráðar eitranir sem koma til meðferðar á bráðamóttökum Landspítala og bera niðurstöður saman við fyrri rannsókn. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var framskyggn og rannsóknartímabilið eitt ár, frá 1. janúar til 31. desember 2012. Gögnum var safnað um allar eitranir vegna efna og lyfja sem komu á bráðamóttöku í Fossvogi, bráðamóttöku barna og Hjartagátt. Niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu voru 977 komur á bráðamóttökur Landspítala vegna eitrana. Konur voru 57% hópsins og karlar 43%. Aldursbilið var frá tveggja mánaða upp í 96 ára og meira en helmingur sjúklinganna var yngri en 30 ára. Meirihluti eitrananna varð á heimilum og oftast var um inntöku að ræða. Sjálfsvígstilraunir og misnotkun voru algengustu ástæður eitrunar (66%). Í 76% allra eitrananna komu lyf og/eða áfengi við sögu. Eitranir vegna annarra efna voru oftast óhappaeitranir og 35% þeirra voru vinnutengdar. Meirihluti sjúklinga (80%) var útskrifaður af bráðamóttöku eftir skoðun og meðferð, 20% voru lagðir inn á aðrar deildir, þar af var 21% hópsins lagður inn á gjörgæsludeild. Tveir sjúklingar létust (0,2%). Ályktun: Tíðni koma vegna eitrana á bráðamóttökurnar var hærri nú en í fyrri rannsókn, en munurinn var ekki marktækur. Konur voru fleiri en karlar og stærsti hópurinn var ungt fólk. Misnotkun og sjálfsvígstilraunir voru algengustu ástæður eitrana. Algengustu eitrunarvaldar voru lyf og áfengi. Meirihluti sjúklinga fékk meðferð á bráðamóttöku og útskrifaðist heim. Dánartíðni var lág. Introduction: The purpose of the study was to assess the incidence and type of toxic exposures presenting to the Emergency Department (ED) at Landspitali University Hospital ...